[16:24]
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
Virðulegi forseti. Hér eru komin til 2. umr. lánsfjárlög fyrir árið 1994. Ég vil aðeins gera það hér að umræðuefni í örstuttu máli að þetta frv. kemur hér til 2. umr. með nokkuð óvenjulegum hætti, þ.e. að eftir 1. umr. er þessu frv. beint til fjárln. Fjárln. er samkvæmt þingsköpum skyld að vísa því til efh.- og viðskn. og að sjálfsögðu er síðan ætlast til þess að efh.- og viðskn. skili því aftur til fjárln. sem taki þá álit efh.- og viðskn. með sinni afgreiðslu. Það hefur hins vegar ekki gerst í þessu tilfelli. Við vísuðum málinu úr hv. fjárln. til efh.- og viðskn. en hún afgreiðir málið frá sér núna þann 14. og 15. des. Þar eru nefndarálitin dagsett og hún sendi það ekki inn til fjárln. Við þetta vil ég gera alveg sérstaka athugasemd, virðulegi forseti, þar sem í 25. gr. þingskapalaga segir, með leyfi forseta:
,,Til efnahags- og viðskiptanefndar vísar fjárlaganefnd frumvarpi til lánsfjárlaga og tekjugrein fjárlagafrumvarps. Nefndirnar skila fjárlaganefnd áliti og tillögum svo tímanlega fyrir 2. umr. fjárlaga sem fjárlaganefnd ákveður. Efnahags- og viðskiptanefnd skal gera grein fyrir áhrifum skattalagabreytinga á tekjur ríkissjóðs fyrir 3. umr. Álit og tillögur nefndanna skal prenta sem fylgiskjöl með nefndaráliti fjárlaganefndar eða meiri hluta hennar.`` Og ég vil leggja áherslu á þetta. ,,Álit og tillögur nefndanna skal prenta sem fylgiskjöl með nefndaráliti fjárlaganefndar.``
Í þessu tilfelli hefur fjárlaganefnd ekki fengið þetta álit inn og þar af leiðandi ekki fjallað um það þar sem ekki hefur unnist tími til þess núna síðustu 2--3 daga að kalla saman fund. En ég tel að hér hafi verið nokkuð óeðlilega að málum staðið og tel fulla þörf á því að taka þetta mál upp aftur eftir áramót þegar þing kemur saman að nýju og fyrirhugað er að fara í frekari skoðanir á þingskapalögum. Ég tel að það þurfi að taka á þessu máli og eins og ég hef áður lýst, þá finnst mér mjög eðlilegt að fjárlaganefnd ein fjalli um þetta mál sem svo mjög er tengt fjárlagafrv. að öðru leyti.