[01:10]
Halldór Ásgrímsson :
Virðulegur forseti. Á síðasta ári var samþykkt á Alþingi að taka upp virðisaukaskatt af bókum. Framsfl. var andvígur þeirri breytingu en þessi breyting hefur nú þegar komið til framkvæmda. Í þeim tillögum sem hafa verið útbúnar af 2. minni hluta nefndarinnar var ekki gert ráð fyrir því að þessi skattur lækkaði, heldur var lögð áhersla á aðrar ráðstafanir eins og barnabætur, vaxtabætur og margt fleira. Í ljósi þessa tökum við ekki þátt í atkvæðagreiðslu um þessa tillögu. Við munum sitja hjá.