[01:58]
Valgerður Sverrisdóttir :
Hæstv. forseti. Við framsóknarmenn gerum okkur grein fyrir því að vegna þeirra fáránlegu laga sem gilda um lánasjóðinn, þá er ekki þörf fyrir meira fjármagn fyrir sjóðinn heldur en hér er gerð tillaga um, en það verður hins vegar að breyta þeim lögum. Það er okkar skoðun að tilgangur með sjóði sem þessum sé að veita námsmönnum framfærslulán og gera þeim kleift að stunda sitt nám nám án tillits til efnahags. Hæstv. ríkisstjórn er á villigötum með Lánasjóð ísl. námsmanna. Ég mun því segja nei við þessari niðurskurðartillögu.