[02:38]
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
Virðulegi forseti. Ég hef svipaðar athugasemdir fram að færa og aðrir sem hafa gert grein fyrir atkvæði sínu. Ég tel að hér sé mjög einkennilega að málum staðið þrátt fyrir það að ég geti vel unnt bændum þess að fá bætur fyrir þetta harðæri sem þeir urðu fyrir sl. vor, en við vorum að greiða atkvæði um það um ráðstafanir í ríkisfjármálum rétt áðan að skerða Bjargráðasjóð og ég tel að það væri miklu eðlilegra að Bjargráðasjóður sæi um þessa hlið mála.