Fjárlög 1994

73. fundur
Þriðjudaginn 21. desember 1993, kl. 02:40:48 (3281)

[02:40]

     Jón Kristjánsson :
    Frú forseti. Þingmenn Framsfl. eru efnislega sammála þessari tillögu, að gera þarf markaðsátak í ferðamálum. Hins vegar er sú aðferð til fjáröflunar í þessu skyni sem hér er lögð til fráleit. Hér er ráðherra veitt heimild til að skera niður fjárveitingar sem Alþingi hefur nýlega samþykkt með afgreiðslu fjárlaga. Eðlileg málsmeðferð hefði verið að fjárln. gerði ákveðnar tillögur um hvernig þessa fjár væri aflað og gengi frá því endanlega. Við munum því ekki greiða atkvæði um þessa tillögu á forsendum þessara vinnubragða.