Jólakveðjur

73. fundur
Þriðjudaginn 21. desember 1993, kl. 03:03:36 (3293)


[03:03]
     Ingibjörg Pálmadóttir :
    Virðulegi forseti. Fyrir hönd okkar þingmanna þakka ég hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég vil þakka virðulegum forseta fyrir góða og réttláta stjórn þessa haustþings sem nú er á enda runnið.
    Ég vil einnig þakka fyrir hönd þingmanna skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsfólki þingsins fyrir einstaka þolinmæði og mikið og gott vinnuframlag en hér vinnur starfsfólk oft undir miklu álagi.
    Fyrir hönd þingmanna óska ég virðulegum forseta og fjölskyldu hennar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Jafnframt óska ég starfsfólki Alþingis gleðilegrar jólahátíðar um leið og við þökkum gott samstarf.
    Ég vil biðja hv. þm. að rísa úr sætum og undirstrika þakklæti okkar. --- [Þingmenn risu úr sætum.]