[16:50]
Hjörleifur Guttormsson (um fundarstjórn) :
Virðulegur forseti. Ég hafði nú vænst þess að hv. 2. þm. Norðurl. v., formaður samgn., hefði eitthvað um þetta að segja, þær efnislegu ábendingar og athugasemdir sem ég hef borið fram og m.a. í ljósi þess sem kom fram hjá hæstv. samgrh. í óbundnu máli sem og bundnu að því er varðaði nafngiftir. Ég skil ekki í rauninni þá tregðu að vilja ekki líta á þessar athugasemdir og taka þær til skoðunar í nefndinni og að bæta þar inn skilgreiningum sem ég hefði talið eðlilegt í 52. gr. sem hér var rætt um af hv. síðasta ræðumanni, hv. 6. þm. Vestf., og vænti þess áður en ég þarf að taka aftur til máls hér þá fái ég að heyra eitthvað frá formanni nefndarinnar.
( Forseti (VS) : Forseti telur það nú alveg á takmörkunum að þetta geti talist flokkast undir fundarstjórn forseta þar sem hlutverk forseta er fyrst og fremst að gefa hv. þm. og ráðherrum orðið en ekki að skikka þá í ræðustól.)
Hæstv. forseti. Nú fór í verra. Úr forsetastóli heyrði ég eitthvað á þá leið að verkefni þess virðulega forseta sem situr að baki mér sem og annarra sé það fyrst og fremst að gefa orðið til manna en ekki að sjá til þess að hér sé starfað með þinglegum og með eðlilegum hætti. Ég hef litið svo til að verkefni forseta væri allt annað en það að kalla til menn í ræðustól í einhverri röð og bið velvirðingar á þessum athugasemdum en ég tel þær nauðsynlegar vegna orða forseta.