[15:42]
Hjörleifur Guttormsson (um fundarstjórn) :
Virðulegur forseti. Ég ætla auðvitað ekki að tala fyrir aðra í sambandi við þetta mál. Ég er eingöngu að lýsa minni afstöðu og mínu viðhorfi til þess og ég treysti á forseta að halda eðlilega á málum. Ég er að biðja forseta um að halda eðlilega á þessu máli. Ég verð að segja að ég tel það afskaplega óskynsamlegt af hálfu forustu þingsins að ætla að keyra fram umræðu um þetta mál í röskan klukkutíma með þann málagrúa hér á dagskrá sem fyrir liggur og hugsanlega mál sem er meira samkomulag um heldur en þetta mál sem hér um ræðir. Og ég skal ekkert leggja mat á fjarvistir hv. 5. þm. Austurl. Það er náttúrlega svo að ef menn eru tvöfaldir í roðinu í störfum, þá geta menn þurft að velja á milli.
( Forseti (SalÞ) : Ég vil biðja menn að nota kurteislegt orðalag.)
Ég verð að segja það, virðulegi forseti, að mér finnst sjálfsagt að fresta umræðunni. A.m.k. biðst ég undan því að taka þátt í henni á meðan hv. formaður nefndarinnar er fjarverandi.