Lífeyrissjóður sjómanna

159. fundur
Miðvikudaginn 11. maí 1994, kl. 17:20:01 (8001)


[17:20]
     Hjörleifur Guttormsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegur forseti. Ég átta mig ekki á því hvort hér er tekið á dagskrá mál þar sem mælendaskrá er eða hvort það tekur einhvern tíma, en ég gerði athugasemd þegar þetta 8. dagskrármál var tekið á dagskrá en varð hins vegar við eindregnum beiðnum um það að falla frá kröfu um það að geta haldið áfram ræðu minni í 7. málinu sem ég ætlaði að ljúka. Ég vildi biðja forseta um að tryggja það að sú umræða geti haldið fram hið fyrsta þannig að það mætti ljúka umræðunni um það mál.