Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

159. fundur
Miðvikudaginn 11. maí 1994, kl. 18:55:10 (8024)


[18:55]
     Hjörleifur Guttormsson :
    Virðulegur forseti. Ég vil aðeins við upphaf atkvæðagreiðslu um þetta mál vekja athygli á því að á þskj. 1297 hef ég flutt eða tekið upp brtt. sem umhvn. þingsins hafði komið sér saman um fyrir 2. umr. málsins, sem felur í sér tilvísun til ákvæða í VI. og VII. kafla frv. með það fyrir augum að styrkja stöðu hlunnindabænda. Af einhverjum ástæðum sem mér eru óljósar eða óskiljanlegar þá er komin tillaga frá nokkrum hv. þingmönnum í umhvn. um að víkja frá þessu og breyta þessu. Ég mun greiða atkvæði gegn þeirri tillögu og mæli með stuðningi við brtt. á þskj. 1297.