Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 1 . mál.


334. Nefndarálit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 1994.

Frá minni hluta fjárlaganefndar.



    Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1994 er nú komið til annarrar umræðu. Nefndin hefur í umfjöllun sinni um frumvarpið einkum fjallað um útgjaldahlið þess. Þó eru þar enn nokkrir stórir gjaldaliðir óafgreiddir og bíða 3. umræðu. Má þar nefna sjúkrahúsin í Reykjavík. Tekjuhlið frumvarpsins bíður einnig 3. umræðu.
    Við 1. umræðu um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1994 lýsti minni hluti fjárlaganefndar þeirri skoðun sinni að frumvarpið væri ekki marktækt. Minni hlutinn lýsti einnig þeirri skoðun sinni við afgreiðslu fjárlaga fyrir yfirstandandi ár og taldi að halli ríkissjóðs yrði enn meiri en gert var ráð fyrir. Þetta reyndust orð að sönnu. Samanlagður halli áranna 1992 og 1993 verður um 20 milljarðar króna, langt umfram það sem gert var ráð fyrir við afgreiðslu fjárlaga fyrir þessi ár.
    Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1994 er lagt fram með halla upp á 10 milljarða króna. Ef ríkisstjórnin heldur áfram uppteknum hætti varðandi stjórn ríkisfjármála má ætla að þær hallatölur sem við verðum að horfast í augu við á næsta ári verði mun hærri.
    Það liggur einnig fyrir að ekki einu sinni allir ráðherrar stjórnarflokkanna hafa trú á því frumvarpi til fjárlaga sem hér kemur til 2. umræðu. Hástemmdar yfirlýsingar þess efnis hafa komið fram aftur og aftur frá því að frumvarpið var lagt fram og síst orðið til þess að styrkja trú manna á fjármálastjórn ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar.

Þjóðhagshorfur.
    Í þjóðhagsáætlun var gert ráð fyrir 0,5% vexti landsframleiðslu á þessu ári og viðskiptahalla sem nemur 1,4% af landsframleiðslu. Þær fréttir sem hafa verið að berast að undanförnu benda hins vegar til þess að hagvöxtur verði meiri og viðskiptahalli minni. Má telja að þorskaflinn úr Smugunni sé þegar orðinn 9.000 þúsund tonn. Sú aukning bætir viðskiptajöfnuð um 400 millj. kr., eykur sjávarafurðaframleiðslu um 1,3% og landsframleiðslu um að minnsta kosti 0,22%. Þessu til viðbótar bendir tiltölulega hagstæð útkoma vöruskiptajafnaðar til og með október til þess að útflutningstekjur geti orðið meiri og viðskiptahalli verði minni en þjóðhagsáætlun gerði ráð fyrir. Auk þess má benda á að afgangur varð á viðskiptajöfnuði fyrstu þrjá ársfjórðunga ársins og verður að fara aftur til ársins 1986 til að finna svipaða stöðu.
    Þessi þróun vekur spurningar um hvort of mikillar svartsýni gætir í spánni fyrir 1994. Samdráttur í þorskafla á þessu fiskveiðiári þarf ekki einungis að koma fram í samdrætti útflutningstekna og landsframleiðslu. Reynslan í ár sýnir að mögulegt er að auka aðrar veiðar og gæti það gerst í ríkari mæli en gert er ráð fyrir í þjóðhagsáætlun.
    Ef lækkun raunvaxta um 2 prósentustig næst má líka búast við að það stuðli að auknum umsvifum í atvinnulífinu og þar með að auknum þjóðartekjum. Til þess að svo geti orðið verður þó að mati minni hlutans að grípa til ýmissa ráðstafana. Þess sjást því miður engin merki.
    Ef hagvöxtur verður meiri í ár og á næsta ári en gert er ráð fyrir í þjóðhagsáætlun og í forsendum fjárlaga ætti halli ríkissjóðs einnig að verða minni að öllu öðru óbreyttu. Vaxtalækkunin dregur einnig sjálfkrafa úr halla ríkissjóðs. Í þessu ljósi er enn óásættanlegra en ella að afgreiða fjárlög með 10 milljarða kr. halla, líklega mesta halla á afgreiddum fjárlögum sem dæmi eru um á síðustu áratugum.
    Þar sem tekjuhlið fjárlaga bíður 3. umræðu mun verða fjallað nánar um þá málaflokka sem snerta hana í framhaldsnefndaráliti. Heildarútgjöld fjármálaráðuneytisins eru nú áætluð 16,4 milljarðar kr. og aukast samkvæmt fjárlagafrumvarpi um 6% en um 25% frá ríkisreikningi 1992. Sérstök ástæða er til að nefna að vaxtagreiðslur hafa aukist um 3,4 milljarða kr. eða 40% á sama tíma og nema vaxtagreiðslur á næsta ári 11,7 milljörðum kr. samkvæmt áætlun fjárlaga. Það er ljóst að gífurlegu máli skiptir fyrir afkomu ríkissjóðs að vaxtastig hérlendis verði með líkum hætti og hjá viðskiptaþjóðum okkar.

Erlendar skuldir.
    Samkvæmt skýrslu Seðlabankans, Peningar, gengi og greiðslujöfnuður, sem kom út 11. nóvember, munu erlendar skuldir aukast verulega á þessu og næsta ári í hlutfalli við landsframleiðslu eða útflutningstekjur. Hreinar erlendar skuldir verða rúm 60% af landsframleiðslu á næsta ári ef svo fer fram eins og gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi og áformum ríkisstjórnarinnar en á árunum 1990/91 var þetta hlutfall um 46%. Aukningin í hlutfalli við útflutningstekjur er jafnvel enn hrikalegri. Hreinar erlendar skuldir munu nema um 175% af útflutningstekjum á næsta ári ef svo fer fram sem horfir en voru um 130% á árinu 1990. Samanburðurinn við útflutningstekjur er jafnvel enn mikilvægari en samanburðurinn við landsframleiðslu því það er með útflutningstekjunum sem við verðum að greiða vexti og afborganir af erlendum skuldum.
    Ríkisstjórnin hefur verið að hreykja sér af því að erlendar skuldir aukist ekki að raungildi á þessu ári. Það er í sjálfu sér rétt að þær munu í ár aukast minna en nemur verðbólgu í nágrannalöndunum. Það er þó engin ástæða til þess að ýta undir andvaraleysi gagnvart erlendum skuldum af þessum sökum eins og ríkisstjórnin virðist gera til að grípa í hálmstrá á erfiðum tímum. Hækkun hlutfalls skulda af útflutningstekjum er jafnalvarleg fyrir það nema að full vissa sé fyrir því að útflutningstekjur hækki mjög fljótlega þannig að hlutfallið leiti í fyrra horf. Slík vissa er ekki til og ekkert í tillögum ríkisstjórnarinnar gefur tilefni til bjartsýni í þessum efnum.

Atvinnu- og kjaramál.
    Íslendingar búa nú við meira atvinnuleysi en þekkst hefur um langt árabil og allt útlit er fyrir að atvinnuleysi fari vaxandi. Á næsta ári mun enn draga úr fiskveiðum vegna minnkandi þorskkvóta og eru afleiðingar þess samdráttar ekki enn farnar að hafa nein teljandi áhrif á atvinnustigið í landinu. Ljóst má vera að á næsta ári stefnir í aukið atvinnuleysi grípi stjórnvöld ekki til róttækra aðgerða og beiti öllum tiltækum ráðum til þess að efla og styrkja atvinnulífið.
    Nú er svo komið að atvinnuleysið er farið að hafa veruleg þjóðfélagsleg áhrif. Álagið í heilbrigðisþjónustunni hefur tvímælalaust farið vaxandi af þessum sökum, félagsleg vandamál hvers konar blasa við okkur og prestastéttin verður ekki síður vör við þetta vandamál. Í erfiðleikum sínum hefur fólk snúið sér í auknum mæli til kirkjunnar og á sumum stöðum hafa prestar í samvinnu við ýmsa aðra aðila, svo sem sveitarfélög og félög launþega og atvinnurekenda, komið upp miðstöð fyrir fólk sem þurft hefur að leita ráðgjafar vegna ýmiss konar vandamála sem upp hafa hlaðist vegna atvinnuleysisins.
    Fjárlög yfirstandandi árs gerðu ráð fyrir því að atvinnuleysi á árinu yrði að meðaltali um 3%. Nú er allt útlit fyrir að það verði að minnsta kosti 4,5–5% og hefur það leitt til verulegs útgjaldaauka fyrir ríkissjóð. Fjárveitingar til Atvinnuleysistryggingasjóðs eru því hækkaðar í fjáraukalögum fyrir árið 1993 um 1,2 milljarða kr. Á næsta ári má gera ráð fyrir að atvinnuleysið verði meira, svo sem áður er sagt, og því má telja ljóst að enn þurfi að veita fjármunum til að styrkja stöðu Atvinnuleysistryggingasjóðsins. Að mati minni hlutans er þeirri fjárþörf ekki mætt að fullu í frumvarpi til fjárlaga fyrir 1994.
    Aðilar vinnumarkaðarins hafa mjög lagt að ríkisstjórninni að grípa til aðgerða til þess að tryggja og treysta atvinnu. Í tengslum við undirskrift kjarasamninga voru gefin loforð um það að verja auknum fjármunum til atvinnuskapandi aðgerða. Nokkur ágreiningur hefur orðið um það hvernig að þeim málum var staðið á sl. sumri. Stjórnarandstaðan hefur talið að þegar ákvarðanir um einstök verkefni voru teknar hefði átt að taka meira tillit til hvaða framkvæmdir voru á undirbúningsstigi svo hefja mætti vinnu þá þegar. Jafnframt hefði átt að veita auknum fjármununum á þau svæði þar sem atvinnuástandið var verst. Nú hefur komið í ljós að einungis hluti af þeim fjármunum sem verja átti til eflingar atvinnulífs hefur nýst á þessu ári. Einnig hefði þurft að hafa enn betur í huga að þessir fjármunir nýttust til nýrra verkefna sem sköpuðu atvinnu á næstu árum en ekki aðeins til þess að leysa tímabundinn vanda.
    Alþýðusambandið hefur haldið því fram að ekki hafi að fullu verið staðið við gefin fyrirheit um fjárveitingar til verklegra framkvæmda af ýmsum toga í fjárlögum, fjáraukalögum og í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Miklar umræður hafa þó farið fram milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins að undanförnu og varð það niðurstaða við framlengingu kjarasamninga nú á haustmánuðum að nokkurn veginn hefði verið staðið við fyrirheitin en í því efni séu vafaatriði og sumir þættir óljósir. Má þar t.d. nefna að ríkisstjórnin vísar til væntanlegra framkvæmda við jarðgöng undir Hvalfjörð sem eru á vegum einkaaðila og á þessu stigi alveg óljóst hvað verður um. Í öðru lagi vísar ríkisstjórnin á það að sveitarfélögin munu væntanlega á næsta ári halda áfram átaksverkefnum hliðstæðum þeim sem unnið var að í sumar og gætu framkvæmdir af þessu tagi numið allt að 500 millj. kr. Og í þriðja lagi má nefna það sem verður að teljast athyglisverðast að ríkisstjórnin vísar beinlínis til þess að talsverður hluti af fyrirhuguðum viðbótarframkvæmdum á árinu í ár, líklega um 600 millj. kr., muni ekki koma til framkvæmda eða greiðslu fyrr en á næsta ári. Þar sem þessar greiðslur eru ekki taldar með í fjárlagafrumvarpinu telur ríkisstjórnin að bæta megi þeim við þær framkvæmdir sem þar eru ráðgerðar og er þá einu sinni enn að áliti stjórnarandstöðunnar verið að ákveða að verja til framkvæmda fjármunum sem búið er að ákveða í fjárlögum fyrra árs. Það sama gerðist á síðastliðnu sumri og þrátt fyrir margítrekaðar yfirlýsingar fjármálaráðherra innan þings og utan um að þær framkvæmdir sem ákveðnar hafa verið á fjárlögum og í fjáraukalögum fyrir 1993 muni ekki í neinu hafa áhrif á framkvæmdastig sem ákveðið er á næsta ári er ekki annað að sjá á þessari yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar til aðila vinnumarkaðarins en að verið sé að telja með framkvæmdum næsta árs það sem lofað var að verja til framkvæmda á yfirstandandi ári.
    Vinnubrögð af þessu tagi átelur stjórnarandstaðan harðlega og telur að hér sé ríkisstjórnin enn að reyna að fara fram með sjónarspil og blekkingar.
    Áherslur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja til þessara mála eru ef til vill með nokkuð öðrum hætti. Vissulega leggur BSRB mikla áherslu á það að fjármunum sé varið til að auka og tryggja atvinnu en hefði viljað sjá meiri áherslu lagða á fjárveitingar til nýsköpunar í atvinnulífinu heldur en til tímabundinna verkefna.
    BSRB hefur einnig haldið því fram að við kjarasamninga árið 1992 hafi verið gefin fyrirheit um húsaleigubætur sem ríkisstjórnin hefur ekki enn staðið við. Efndir á þessum fyrirheitum eru engar enn og eru ekki boðaðar með fjárveitingum í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár.
    Af þessu má sjá að full ástæða er til að hafa uppi efasemdir um það að ríkisstjórnin ætli sér að standa við á næsta ári þau fyrirheit sem hún hefur gefið launþegasamtökum og aðilum vinnumarkaðarins í tengslum við nýgerða kjarasamninga.
    Í áðurnefndri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar til launanefndar aðila vinnumarkaðarins er sérstaklega getið um það að framkvæmd á eingreiðslum til lífeyrisþega vegna launabóta á næsta ári verði ákveðin í nánu samráði við samtök launþega og aðra hagsmunaaðila. Þessi yfirlýsing mun vera gefin vegna þess að í fjárlagafrumvarpi er ekki gert ráð fyrir með sama hætti og gert er í ár, fjármunum til þess að greiða þessar eingreiðslur, þ.e. orlofsuppbót, desemberuppbót og láglaunabætur til lífeyrisþega. Fjárveiting í frumvarpinu nemur aðeins 370 millj. kr. en kostnaður við þessar greiðslur í ár muni nema tæpum 600 millj. kr. þannig að hér vantar verulega fjármuni.
    Sömu sögu er að segja vegna verðuppbóta og bókana í tengslum við kjarasamninga kennara. Í frumvarpinu eru engar fjárhæðir til þess að mæta þeim breytingum sem kunna að verða í tengslum við þessa samninga á árinu 1994. Áætlaður kostnaðarauki til að útfæra þessi fyrirheit og bókanir kunni að verða um 100 millj. kr. Í breytingartillögum meiri hlutans við frumvarpið er hins vegar aðeins gert ráð fyrir að bæta þetta með 50 millj. kr. þannig að annaðhvort er ekki gert ráð fyrir að standa við þessi ákvæði kjarasamninganna eða stjórnendum skólanna ætlað að grípa til enn frekari niðurskurðaraðgerða.
    Þetta hlýtur að verða að teljast algerlega óviðunandi og ótrúlegt að aðilar vinnumarkaðarins geti gætt sig við að þannig sé farið með hina ýmsu þætti í fjárlögum sem tengjast nýgerðum kjarasamningum.

Vaxtamál.
    Einn áhrifaríkasti þátturinn í efnahagsstefnunni og sá sem hefur ef til vill mest áhrif á þróun efnahagsmála er þróun vaxta. Vaxtastefna ríkisstjórnarinnar hefur verið mjög mikið gagnrýnd allt frá því að þessi ríkisstjórn tók við völdum en eitt af hennar fyrstu verkum var veruleg hækkun vaxta á ríkisverðbréfum sem leiddi til þess að vextir hækkuðu um allt að þriðjung. Stjórnarandstaðan hefur hvað eftir annað lagt hart að ríkisstjórninni að grípa til allra tiltækra ráða til þess að knýja fram vaxtalækkun. Einnig hefur krafan um vaxtalækkun verið mjög áberandi af hálfu aðila vinnumarkaðarins, bæði launþega og vinnuveitenda, og hefur það hvað eftir annað komið fram í viðræðum þessara aðila við ríkisvaldið, t.d. í tengslum við kjarasamninga.
    Nú á dögunum greip ríkisstjórnin loks til þess ráðs knúin af fyrrgreindum aðilum, stjórnarandstöðu í umræðum á þingi og aðilum vinnumarkaðarins að lækka vexti með aðgerðum sem ávallt hefur verið haldið fram að ríkisstjórnin gæti beitt, þ.e. með því að ákveða vaxtastig á ríkisverðbréfum og með því að knýja á Seðlabankann að grípa til ráðastafana sem gætu haft áhrif á vaxtaþróun í bankakerfinu. Þessar aðferðir hafa sumir kallað handaflsaðgerðir en aðrir kjósa að tala um handleiðslu og má einu gilda hvort heldur er. Aðalatriðið er það að stjórnvöld sáu sig loks neydd til þess að grípa inn í þróun mála og hefði það sannarlega mátt vera fyrr.
    Nokkuð hefur vaxtastigið lækkað við þessar aðgerðir, einkum þó á verðbréfum ríkissjóðs, og voru miklar væntingar við það bundnar að sú þróun mundi einnig ná til vaxtanna í bankakerfinu.
    Nú eru hins vegar ýmsar blikur á lofti hvað þetta varðar og má telja nánast sýnt að þessi vaxtalækkun verði skammvinn eða að minnsta kosti hafi hún ekki þau áhrif sem til var ætlast á vaxtaþróun í landinu. Verður því að beita öllum tiltækum ráðum til þess að vextir lækki á öllum sviðum.
    Á síðasta vaxtaákvörðunardegi kom í ljós að bankarnir töldu sig ekki hafa frekara svigrúm til vaxtalækkunar og lítur þá út fyrir að raunávöxtun á óverðtryggðum lánum sé á bilinu 12–16%. Þetta verður að teljast algjörlega óviðunandi og ljóst að nafnvextir útlána í bankakerfinu eru ekki í samræmi við þau markaðskjör sem nú gilda t.d. á ríkisverðbréfunum.
    En það er víðar en í bankakerfinu sem vaxtaþróunin virðist vera með öðrum hætti heldur en ríkisstjórnin hefur haldið fram eftir þær aðgerðir sem hún greip til um mánaðamótin október/nóvember. Í nýlegu skuldabréfaútboði Húsnæðisstofnunar ríkisins kemur í ljós að stærstu fjárfestarnir eru ekki tilbúnir til þess að sætta sig við það vaxtastig sem boðið er upp á og krefjast hærri raunávöxtunar en þar var miðað við.
    Og sömu sögu virðist mega segja varðandi þróun hjá Iðnþróunarsjóði og Iðnlánasjóði en þar eru vextir enn þá mjög háir og hafa ekki lækkað í samræmi við þá vaxtalækkun sem hefur orðið á verðbréfaþingi og á ríkisverðbréfum að undanförnu. Þar er lækkunin aðeins um 0,5% og raunvextir því enn þá mjög háir hjá þessum sjóðum. Þetta sýnir aðeins og sannar það sem stjórnarandstaðan hefur margsinnis haldið fram að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar er kolröng. Það eitt að grípa til aðgerða sem áttu að leiða til vaxtalækkunar til lengri tíma nægir ekki nema samræmdar efnahagsaðgerðir fylgi í kjölfarið og fjármunum verið varið til þess að efla þróunar-, rannsókna- og markaðsstarfsemi. Slíkar aðgerðir hefðu orðið til þess að auka bjartsýni, áræðni og þor fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga í landinu og hefði vissulega mátt vænta þess að hér væri um að ræða aðgerðir sem hefðu varað til lengri tíma en nú er útlit fyrir. Vaxtalækkun til skemmri tíma muni hafa lítil áhrif á þróun efnahags- og atvinnumála í landinu á næsta ári.

Mennt og menning.
    Íslendingar hafa hingað til talið tilveru sína hér á endimörkum veraldar standa á styrkum stoðum fornrar menningar, einkum bókmenningar. Þessar stoðir sæta nú ágangi nýrra strauma sem borist hafa með nýjum stjórnarháttum. Nýleg skýrsla um stöðu læsis í landinu sýnir svo að ekki verður um villst að íslensk börn og unglingar eru lakar læs en jafnaldrar þeirra í Evrópu. Þrátt fyrir þessa staðreynd vílar ríkistjórnin ekki fyrir sér að skera enn niður framlög til kennslumála sem gerir skólum landsins ófært að efla undirstöðumenntun í landinu með aukinni kennslu og bættum aðbúnaði í skólunum. Með sívaxandi hlutdeild skólans í uppeldi barna og unglinga m.a. vegna óhóflegrar útivinnu foreldra en jafnframt sífelldum niðurskurði á fjárlögum til þessara verkefna vaxa erfiðleikar kennarastéttarinnar við að axla þá ábyrgð. Afleiðingin blasir við þeim sem hana vilja sjá: Vaxandi vandamál unglinga, ofbeldi ólíkt því sem áður hefur þekkst, minnkandi lestrargeta og þar með bóklestur. Þessi þróun er slíkt áhyggjuefni að furðu má sæta að ekki sé brugðist við henni áður en í óefni er komið í stað þess að láta skeika að sköpuðu og draga enn úr framlögum til skólamála.
    Í tíð síðustu ríkisstjórnar var unnið mikið starf við mótum menntastefnu í landinu. Að því verki kom stór hópur skólamanna og sérfræðinga. Ný grunnskóla- og leikskólalög voru samþykkt samhljóða á Alþingi. Ekki hafði ný ríkisstjórn fyrr sest í ráðuneytin en hafist var handa um að hafa þessa miklu vinnu að engu og skera niður fjárframlög til þessara verkefna. Lánasjóður íslenskara námsmanna var skorinn niður við trog og hreykir ríkisstjórnin sér nú af því að „sparast“ hafi milljarðar í sjóðnum. Sá sparnaður er í því fólginn að fjöldi námsmanna, ekki síst konur með börn á framfæri, hafa hrökklast frá námi heima og erlendis og úr Tækniskóla Íslands hurfu tugir nemenda á síðasta ári svo að öll áætlun skólans fór úr böndum. Hvernig þetta kemur heim og saman við hin fögru orð menntamálaráðherra um auknar áherslur á rannsóknir og vísindi er spurning sem minni hluti fjárlaganefndar krefst svara við. Minni hlutinn telur að hér sé ferðast á hættulegum slóðum sem leitt gætu þjóðina inn á varasama braut á næstu áratugum. Öllum hugsandi mönnum ætti að vera ljóst að hagsæld þjóðar byggist á þeirri þekkingu og verkmennt sem þjóðin býr yfir á hverjum tíma, og ættu menn ekki að þurfa að leita langt aftur til fyrri tíma til að skilja það. Það væri verðugt verkefni á 50 ára afmæli lýðveldisins að standa vörð um og efla vöxt og viðgang mennta og menningar í þessu landi en því er verr að það frumvarp til fjárlaga, sem nú er lagt fram, ber þeim vilja engin merki.
    Háskóli Íslands býr við kost sem er allri þjóðinni til vansa. Svo hefur verið að honum þrengt að hvergi nærri hefur verið unnt að veita kennslu í þeim greinum sem nemendur eru krafnir um kunnáttu í. Uppbygging húsakosts skólans hefur verið háð Happdrætti Háskóla Íslands allt frá árinu l936 og naut happdrættið um skeið einkaleyfis sem peningahappdrætti. Með sívaxandi fjölda happdrætta af öllu tagi hefur Háskólinn neyðst til að grípa til heldur ógeðfelldra aðferða til fjáröflunar sem engum er sómi að. Bókasafn Háskólans er hvergi nærri sambærilegt öðrum háskólabókasöfnum um bókakost og herðir nú enn að því með þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja að nýju virðisaukaskatt á bækur sem síðasta ríkisstjórn hafði létt af.
    Síðast en ekki síst eru laun í landinu orðin slík endaleysa að það bitnar á öllu starfi. Kennarar verða ekki síst fyrir barðinu á lágum launum þar sem þeir koma velflestir til starfa með skuldabagga á bakinu að afloknu löngu námi. Það er áhyggjuefni að ungt menntafólk kunni að velja sér starfsvettvang í öðrum löndum þar sem betri kjör og verðugri aðstaða til rannsókna er í boði og kynni slíkur atgervisflótti að reynast þjóðinni dýrkeyptur.
    Sjávarútvegur hefur löngum verið undirstaða tilvistar íslensku þjóðarinnar. Ekki er að sjá að mikil alvara liggi að baki stofnunar sjávarútvegsdeildar Háskólans á Akureyri. Hafið umhverfis landið er að miklu leyti órannsakað þó að vitað sé um ónýtta fiskstofna sem verða mættu mikil stoð þegar draga þarf úr nýtingu þeirra stofna sem við þekkjum best. Sama fálmið einkennir uppbyggingu iðnaðar í landinu. Handmenntakennslu hefur farið hrakandi í grunnskólanum og iðnmenntun hefur verið allt of lítill sómi sýndur og sú þróun er tæplega leiðin til þess að efla íslenskan iðnað og gera hann samkeppnisfæran í nýrri Evrópu. Minni hlutinn gerir sér enda ljóst að með tilkomu samnings EFTA-þjóða og Evrópubandalags komast Íslendingar ekki upp með að standa þannig að verki og varar þá sem að honum stóðu við þeirri staðreynd.
    Breytingartillögur um einstaka liði menntamála í frumvarpi til fjárlaga telur minni hlutinn þjóna litlum tilgangi. Hann auglýsir hins vegar eftir stefnumótun þessarar ríkisstjórnar í menntamálum og bendir á það starf sem þegar hafði verið unnið.

Fjöskyldan á Ári fjölskyldunnar 1994.
    Fjölskyldur með ung börn eiga erfiðar uppdráttar hér á landi nú en verið hefur um langt skeið. Allur þorri foreldra á einskis annars kost en að vinna utan heimilis allt of langan vinnudag. Engin nothæf lausn hefur fundist á þeim sjálfsagða rétti fjölskyldna til að hafa þak yfir höfuðið nema eignastefna sú sem Íslendingar hafa trúað á um áratuga skeið. Skuldabaggi heimilanna er því slíkur að undrum þætti sæta alls staðar annars staðar. Laun eru í fullkomnu ósamræmi við það sem fólk þarf að greiða til brýnustu nauðsynja svo að stór hópur launafólks lifir á launum næstu mánaða. Engin leið er því að gera áætlun um fjárhag fjölskyldnanna og því láta menn reka á reiðanum. Þess utan hefur þetta ástand veikt samtök launafólks sem veigra sér við að bjóða stjórnvöldum birginn þegar að þrengir. Vel má vera að sá hafi einmitt verið tilgangurinn með því að skapa slíkt ástand.
    Aðstæður ungra barna í landi okkar eru vegna þessa engum til sóma. Sá vinnustaður finnst varla lengur sem ekki hefur á boðstólum einhvers konar máltíð í hádeginu. En þeir sem örast vaxa og mest þarfnast hollrar og góðrar fæðu — börnin í landinu — eru oft og tíðum matarlítil eða matarlaus á sínum vinnustað, þ.e. í skólunum. Og þegar skóla lýkur, löngu áður en foreldrarnir hafa lokið vinnudegi sínum, koma þau að tómu húsi. Þar er engan að finna nema erlendar sjónvarpsstöðvar eða myndbönd með vafasömu afþreyingarefni. Það má vera hverjum manni ljóst að þetta bitnar jafnt á líkamlegum sem andlegum þroska barnanna. Það er afdráttarlaus krafa minni hluta fjárlaganefndar að unnið verði að því að samræma kennslutíma barnanna og vinnutíma foreldranna. Vandræðalegar geymslustofnanir innan skólanna, sem enga aðstöðu hafa til kennslu eða leiks, eru engin lausn á þessum vanda.
    Nýleg skýrsla Evrópubandalagsins sýnir að kjarnafjölskyldan á nú í vök að verjast með breyttum atvinnuháttum iðnríkjanna. Barnsfæðingum fer fækkandi svo að menn hafa áhyggjur af verulegri röskun á aldursskiptingu Evrópuþjóða. Í Danmörku er málum svo komið að 60% fullvaxta Dana búa einir eða með börnum sínum. Hingað til hefur tala fæðinga ekki valdið áhyggjum hér á landi en full ástæða er til að búa fjölskyldunni þau skilyrði til farsæls lífs að þjóðin viðhaldi sjálfri sér. Þarf vart mikið hugmyndaflug til að sjá hver áhrif umtalsverð röskun á aldri landsmanna hefði í svo fámennu samfélagi.

Félagsmál.
    Í málefnum sem heyra undir félagsmálaráðuneytið gera fjárlögin ráð fyrir ýmsum breytingum. Rekstrarútgjöld og tilfærslur hækka í ráðuneytinu um 993,5 millj. kr. eða 28%.
    Framlag í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga hækkar um 600 millj. kr. Þetta þýðir þó ekki hækkun á rauntekjum sjóðsins því framlagið er í stað landsútsvars sem fellur niður og afnumin er skerðing til sjóðsins upp á 100 millj. kr. sem var á fjárlögum yfirstandandi árs. Sjóðurinn fékk 250 millj. kr. á fjáraukalögum 1993 til að standa straum af greiðslum til Innheimtustofnunar sveitarfélaga vegna barnsmeðlaga. Ekki er gert ráð fyrir þessari upphæð á fjárlögum fyrir árið 1994 og borið við að innheimta verði betri en á árinu 1993. Ekkert bendir til þess að straumhvörf verði í þessu efni. Allt eins er líklegt að þessi viðbótarútgjöld lendi á sveitarfélögunum á næsta ári.
    Þar að auki er alls ósýnt eftir hvaða reglum Jöfnunarsjóðurinn á að vinna í framtíðinni eða hvernig tekjujöfunarframlög hans ríma við frumvarp um tekjustofna sveitarfélaga sem liggur fyrir félagsmálanefnd Alþingis. Frumvarp um málefni Jöfnunarsjóðsins er í vinnslu og er ekki komið fram. Það er því fullkomin óvissa um hvernig Jöfnunarsjóðurinn getur staðið við skuldbindingar sínar með þeim fjármunum sem honum eru ætlaðir samkvæmt frumvarpinu.
    Gert er ráð fyrir að Framkvæmdasjóður fatlaðra taki þátt í ákveðnum rekstrarverkefnum, svo sem aðstoð við fatlaða sökum félagslegrar hæfingar og endurhæfingar. Kostnaður við þetta er áætlaður 42,2 millj. kr. Sjóðurinn verður fyrir tekjumissi upp á 30 millj. kr. vegna lægri tekjuáætlunar af erfðafjárskatti. Minni hlutinn bendir á þessar lækkuðu tekjur um leið og sjóðurinn fær aukin verkefni án þess að lagst sé gegn þeirri hugmynd að sjóðurinn taki þátt í afmörkuðum rekstrarverkefnum sem geta samrýmst upprunalegu markmiði hans að jafna stöðu fatlaðra og ófatlaðra í þjóðfélaginu.
    Einnig er á það bent að málefni Sólheima í Grímsnesi hafa ekki fengið afgreiðslu fjárlaganefndar en með bréfi frá 18. október 1993 vísar félagsmálaráðuneytið þeim til nefndarinnar. Þjónustusamningur hefur ekki verið gerður og málefni stofnunarinnar eru í fullkominni óvissu með þeim fjárveitingum sem henni eru ætlaðar í frumvarpinu.
    Brunamálastofnun er ætlað að hækka sértekjur um 11,9 millj. kr. og Vinnueftirliti ríkisins um 4,1 millj. kr. og er það í samræmi við þá stefnu ríkisstjórnarinnar að innheimta skatta í formi sértekna sem nefnd eru þjónustugjöld.
    Húsnæðisstofnun ríkisins er ætlað að spara 24 millj. kr. í rekstri á árinu 1994. Ekki liggur nein áætlun að baki þessari tölu. Þótt ljóst sé að einhver sparnaður verði þegar starfsfólk sem sagt var upp á síðasta ári fer af biðlaunum hjá stofnuninni og möguleikar séu á því að leigja húsnæði sem hefur losnað er bent sérstaklega á að á stofnunina hlaðast nú mikil verkefni vegna greiðsluerfiðleika fólks og ráðgjafar vegna þeirra. Þetta er í beinum tengslum við þá efnahagserfiðleika sem eru í þjóðfélaginu og speglast í því að skuldir einstaklinga hafa margfaldast, ekki síst vegna afborgana og vaxta af húsbréfum og lánum vegna húsnæðis.
    Liðurinn Vinnumál lækkar frá fyrra ári auk þess sem nýjum verkefnum er beint inn í þennan fjárlagalið. Aðilar vinnumarkaðarins gegna miklu hlutverki í mótun efnahagsstefnu og í því að veita stjórnvöldum aðhald í opinberri umræðu. Styrkurinn hefur verið til þess að efla þetta hlutverk. Auk þess hefur styrkurinn verið notaður til þess að auka hagræðingu hjá aðildarfélögum aðila vinnumarkaðarins.
    Til framkvæmdaáætlunar um jafnréttismál er veitt 3,2 millj. kr. Hins vegar gengur frumvarpið skammt til móts við það frumkvæði sem konur hafa sýnt í atvinnumálum. Til atvinnumála kvenna er veitt 15 millj. kr. og hefur félagsmálaráðuneytið sótt um að breyta nafninu á fjárlagaliðnum Atvinnumál kvenna á landsbyggðinni í: Atvinnumál kvenna. Minni hlutinn telur fulla þörf fyrir stuðning við atvinnumál kvenna um land allt en telur 15 millj. kr. hvergi nærri þeirri þörf sem fyrir hendi er.

Heilbrigðis- og tryggingarmál.
    Í stjórnartíð núverandi ríkisstjórnar hefur hvað eftir annað að frumkvæði heilbrigðisráðherra verið gerð hörð hríð að uppbyggingu og skipulagi heilbrigðisþjónustunnar og almannatryggingakerfisins. Stjórnarandstaðan hefur mótmælt þessum aðgerðum harðlega og talið að með þeim væri annars vegar verið að skaða uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar sem gæti haft í för með sér alvarlegar afleiðingar til lengri tíma litið og jafnframt að með breytingum á almannatryggingarkerfinu væri verið að raska eða breyta verulega þeirri stefnu sem okkar velferðarkerfi hefur byggst á og verið hornsteinn hennar, þ.e. samhjálp þjóðarinnar allrar og samtrygging sem leiddi til þess að þeir sem minna mega sín eða verða undir í lífsbaráttunni af einhverjum ástæðum geti átt það tryggt að almannatryggingakerfið veiti þeim þá aðstoð sem nauðsynleg er. Breytingar þessar hafa verið gerðar undir formerkjum nauðsynlegs aðhalds og sparnaðar í opinberum rekstri og skal síst lítið gert úr þeim viðhorfum og markmiðum en stjórnarandstaðan hefur haldið því fram að þarna hafi ekki verið farið rétt að. Unnið hefur verið flausturslega að ýmsum breytingum og þær oftar en ekki þurft að endurskoðast jafnharðan. Ýmist hafa þær verið dregnar til baka eða breytt verulega og nú þegar hægt er að líta á aðgerðir þessar með nokkurri reynslu þegar tvö ár eru liðin af valdatíma ríkisstjórnarinnar kemur í ljós að sparnaðurinn hefur orðið óraunverulegur ef nokkur af öllu þessu brölti en breytingarnar á hinn bóginn valdið verulegu óhagræði og í sumum tilfellum tjóni.
    Verulegur hluti þessara breytinga felst í því að stórauka svokölluð þjónustugjöld, þ.e. greiðslur þeirra sem þurfa á aðstoð heilbrigðis- og tryggingakerfis að halda fyrir þá þjónustu sem veitt er. Þetta er gert með þeirri röksemdafærslu að með því sé verið að auka kostnaðarvitund einstaklinga. Sannleikurinn er sá að hér er um stóraukna skattheimtu að ræða og verið að færa skattálögurnar frá því kerfi að menn greiði skatta sérstaklega eftir efnum og ástæðum í það form að einstaklingarnir greiði sérstaklega fyrir opinbera þjónustu. Með þessu er horfið frá þeirri samhjálp sem þjóðarsátt hefur verið um. Þessu hefur stjórnarandstaðan mótmælt harðlega og gerir enn.
    Sé borinn saman ríkisreikningur tveggja seinustu ára, fjárlög þessa árs og fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár, kemur í ljós að veruleg hækkun er á þessum þjónustugjöldum. Er þó ekki allt talið því að greiðslur einstaklinga fyrir lyf og fyrir sérfræðiþjónustu ýmiss konar koma hvergi fram. Þær lækka aðeins þann reikning sem apótekin og sérfræðingarnir senda tryggingakerfinu en sjást hvorki í ríkisreikningi eða öðrum opinberum skýrslum. Þess vegna er ekki auðvelt að átta sig á hversu mikil hækkun hefur orðið á þessum greiðslum á undanförnum árum en ljóst að hún er gífurleg og miklu meiri en fram kemur í opinberum tölum. Ef litið er á hækkun þjónustugjalda og sértekna hjá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti frá árinu 1990 kemur í ljós að það ár samkvæmt ríkisreikningi hafa þessar tekjur numið 1.516 millj. kr. Árið 1991 er þessi upphæð 2.372 millj. kr. og árið 1992 er upphæðin komin í 2.733 millj. kr. Þetta þýðir hækkun samtals upp á 1.217 millj. kr. eða 80,3%.
    Í greinargerð fjárlagafrumvarpsins er getið um nokkra liði sem eiga að leiða til umtalsverðrar lækkunar á útgjöldum lífeyris- og sjúkratrygginga. Flestar þessar tillögur eru gamlir kunningjar og hefur ekki allt gengið fram á undanförnum missirum eins og ríkisstjórnin hefur áætlað. Má þar fyrst nefna hugmyndir um að lækka eingreiðslu til lífeyrisþega um 200 millj. kr. svo sem áður er getið en síðar er búið að gefa aðilum vinnumarkaðarins loforð um að þessar greiðslur verði svo til óbreyttar á næsta ári.
    Í öðru lagi var fyrirhugað að lækka lífeyrisgreiðslur vegna áforma um að tekju- og eignatengja þessar greiðslur og átti að spara 200 millj. kr. Nú er samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu einnig fallið frá þeim hugmyndum enda ekki uppi áform um það taka upp eigna- og fjármagnstekjuskatt en sú skattalagabreyting er forsenda þess að hægt sé að tekju- og eignatengja lífeyrisgreiðslurnar.
    Í þriðja lagi var áformað að tekjutengja ekkjulífeyri og átti það að skila um 50 millj. kr. Nú er dregið úr þeim sparnaðaráformum um helming eða 25 millj. kr. Að lokum var áætlað að herða eftirlit með útgreiðslum bóta og átti það að gefa af sér um 75 millj. kr. Slík áform hljóta þó að vera mjög óljós og óvíst til hvaða sparnaðar þau geta leitt. Þó einhver sparnaður næðist af þessum ráðagerðum má ljóst vera að ákvarðanir sem teknar hafa verið eftir að fjárlagafrumvarpið var samið leiða til lækkunar á sparnaðaráformum um 450–500 millj. kr. á þessum eina lið. Í sjúkratryggingunum var áætlað að spara 730 millj. kr. Hæsta upphæðin þar var tekjur af heilsukortum upp á 400 millj. kr. sem nú hafa verið felldar niður. Annað varðaði breytt greiðslufyrirkomulag til lækna, endurskoðun á greiðslum fyrir röntgenmyndatökur og rannsóknir og endurskoðun á fyrirkomulagi lyfjaverðlagningar.
    Sýnt er að frumvarpið er að þessu leytinu til með mörgum óvissuþáttum og hugmyndir sem komið hafa fram síðustu daga og verið sýndar í fjárlaganefnd til að mæta þessu tekjutapi eru ekki mjög trúverðugar svo ekki sé meira sagt. Þar er t.d. gert ráð fyrir að spara enn 180 millj. kr., m.a. með því að draga úr útgjöldum vegna hjálpartækja um 50 millj. með því að hjálpartækin verði boðin út. Draga á úr greiðslum fyrir læknisaðgerðir sem framkvæmdar eru erlendis. Það á að spara 15 millj. kr. en ekki gert ráð fyrir því að það leiði til neins kostnaðarauka á sjúkrastofnunum innan lands sem hlýtur að þýða að það eigi hreinlega að fækka þessum aðgerðum og láta sjúklinga búa við það að fá ekki læknismeðferð ef ekki er hægt að sinna þeim hér heima. Sjúkradagpeningagreiðslur eiga einnig að lækka um 15 millj. kr. með því að draga á úr greiðslum sjúkradagpeninga til einstaklinga sem dveljast lengi á stofnunum. Loks á enn að auka sparnað í lyfjakostnaðinum um 100 millj. kr. Þessu til viðbótar hafa áform heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra að ríkið hætti rekstri leikskóla sjúkrastofnana ekki gengið fram. Sú aðgerð átti að spara um 200 millj. kr. Því þarf að hækka fjárveitingar til reksturs skólanna um 80 millj. kr. Nær helmingur af þeirri upphæð er þó tekinn af rekstrarhagræðingarfé ráðuneytisins svo að nettóhækkun er um 40 millj. kr.
    Umfjöllun um stóru sjúkrahúsin þrjú í Reykjavík, Ríkisspítala, Borgarspítala og Landakotsspítala, er frestað til 3. umræðu og er því ekki fjallað ítarlega um þau mál hér. Ýmislegt bendir til að lítill sparnaður hafi í heildina orðið af öllum þeim breytingum og tilfæringum sem gerðar hafa verið á rekstri sjúkrahúsanna á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum tveimur árum.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að taka upp nýjan tekjulið á sviði heilbrigðismála. Er þar um að ræða meðferðargjöld sem áfengissjúklingum er ætlað að greiða fyrir dvöl á meðferðarstofnunum. Á þessi nýi sjúklingaskattur að skila um 40 millj. kr. Þessu hefur ekki enn verið breytt og er þá líklega eina „sparnaðartillaga“ heilbrigðisráðherra sem enn stendur óhögguð. Það verður að teljast í fullu samræmi við aðrar aðgerðir ríkisstjórnarinnar á sviði heilbrigðis- og tryggingamála, þ.e. að láta sjúklingana borga.
    Ýmsir forsvarsmenn á sviði heilbrigðismála hafa varað eindregið við þessari hugmynd og telja að innheimta muni verða mjög erfið. Prófessor Tómas Helgason, forstöðulæknir á geðdeild Landspítalans, spyr í grein í Morgunblaðinu nýlega hvers vegna þessir sjúklingar séu neyddir til að leita aðstoðar félagsmálastofnana til greiðslu meðferðar frekar en aðrir sjúklingar. Nýlega sendu læknar við FSA frá sér svohljóðandi tillögu: „Fundur læknaráðs Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri hinn 6. des. 1993 skorar á heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og alþingismenn að hætta við þá gjaldtöku af áfengissjúklingum á sjúkrastofnunum sem áformuð er í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1994 vegna þess að slík mismunun gagnvart þeim sjúklingahópi samræmist ekki siðum lækna og annarra heilbrigðisstétta og er líkleg til að auka útgjöld þjóðfélagsins vegna heilsutjóns af völdum áfengis og annarra fíkniefna.“
    Undir þessa áskorun vill minni hluti fjárlaganefndar taka og væntir þess að heilbrigðisráðherra og aðrir stjórnarliðar komi í veg fyrir þá mismunun sem felst í því að áfengissjúklingar þurfi að greiða fyrir meðferð sjúkdóms síns eða eiga á hættu að skaðinn verði óbætanlegur ef þeir geta ekki borgað.

Dóms- og kirkjumál.
    Helsta breytingin sem frumvarpið gerir ráð fyrir er að útgjöld til sýslumannsembætta dragist saman um 90 millj. kr. frá fjárlögum 1993 vegna fækkunar embætta og skipulagsbreytinga sem því fylgja. Fjárlaganefnd hefur engar upplýsingar fengið sem rökstyðja þennan sparnað og draga má í efa að þessi aðgerð njóti stuðnings meiri hluta þingmanna. Minni hluti fjárlaganefndar telur þessa aðgerð lítt grundaða og engan rökstuðning er að finna fyrir því í frumvarpinu að þessi sparnaður nái fram að ganga nema þjónusta þessara embætta skerðist stórlega. Allt er óvíst um framgang þessa máls vegna ósamkomulags í stjórnarliðinu sem er líkt og á fleiri sviðum.
    Erindi biskups Íslands um stöður aðstoðarpresta var hafnað. Þar var um að ræða þrjár stöður í fjölmennum prestaköllum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Benda má á í þessu sambandi að álag á stóknarpresta í fjölmennum sóknum er mjög mikið, ekki síst í því efnahags- og atvinnuástandi sem nú er þegar leitað er til þeirra í miklum mæli af þeim sem höllum fæti standa í lífsbaráttunni.
    Sömuleiðis var hafnað umsókn um prestsembætti í Gautaborg en benda má á að slíkt embætti þar gæti verið þýðingarmikið vegna fjölda sjúklinga sem leitar sér aðgerða þar í borg en kostnaður ríkissjóðs vegna sérstakra fylgdarmanna þeirra er um 10 millj. kr. á ári. Auk þess gæti prestur í Gautaborg þjónað hinni fjölmennu Íslendingabyggð í Ósló.
    Minni hluti fjárlaganefndar telur miður að slík erindi, sem hér um ræðir, skuli ekki fá meiri undirtektir en raun ber vitni.

Landbúnaðarmál.
    Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu dragast útgjöld til málefna sem falla undir landbúnaðarráðuneytið saman um 8%. Þetta er hlutfallslega mesta lækkun útgjalda sem eitt ráðuneyti verður að taka á sig. Landbúnaðurinn er nú í þeirri stöðu að undirbúa sig undir vaxandi samkeppni og hefur orðið að taka á sig mikla lækkun framlaga á undanförnum árum vegna búvörusamninga sem gera ráð fyrir minnkandi framleiðslu.
    Engan veginn hefur verið staðið við bókanir vegna búvörusamningsins og í frumvarpinu er ekki að sjá neina stefnumörkun sem gæti auðveldað aukna framleiðni og atvinnusköpun í landbúnaði. Framlög til landgræðslu og skógræktar standa í stað. Stuðningur við leiðbeiningastarfsemina í landbúnaði er skorinn niður ár eftir ár. Búnaðarfélagi Íslands og héraðsbúnaðarsamböndunum er gert að skera niður fyrir lífeyrisskuldbindingum starfsmanna sem alls ekki er almenn regla í ríkiskerfinu eða hliðstæðum stofnunum.
    Búnaðarfélag Íslands hefur með höndum lögbundna starfsemi sem löggjafinn hefur falið því að inna af hendi og ríkið hefur kostað. Framlag til þessa er fært á fjárlögum sem styrkur til félagsins. Í fjárlagatillögum var miðað við óbreytta starfsemi en félaginu er gert að skera niður, m.a. fyrir lífeyrisskuldbindingunum og draga enn saman starfsemi sína.
    Frumvarpið gerir ekki ráð fyrir að jarðræktarframlög verði greidd á næsta ári. Nú þegar hefur myndast skuld vegna framkvæmda á árinu 1992 upp á 71 millj. kr. Unnið er eftir óbreyttum lögum en 4. gr. laga nr. 1/1992, um ráðstafanir í ríkisfjármálum, tekur fyrir að framkvæmdastyrkir séu greiddir nema framlög komi á fjárlögum. Því er nú þegar byrjaður að myndast skuldahali sem tekur verðbótum byggingavísitölu samkvæmt lögum.
    Jarðræktarlög eru óbreytt og unnið er eftir þeim. Því er verið að sópa útgjöldum undir teppið með þessari afgreiðslu meiri hluta nefndarinnar.
    Þó að aðstæður hafi breyst í landbúnaði og framleiðsla dregist saman byggir nútímalandbúnaður á því að viðhalda ræktun til þess að tryggja gæði fóðurframleiðslunnar. Auk þess falla fleiri verkefni undir jarðræktarlög svo sem gróðurhús, garðávaxtageymslur, vatnsveitur, skjólbelti o.fl.
    Rökstuddum beiðnum bændaskólanna á Hólum og Hvanneyri vegna viðhalds húsnæðis og uppbyggingar aðstöðu á Hólum til kennslu og rannsókna í hrossarækt og reiðmennsku var hafnað. Sömuleiðis var umsókn um fjárveitingu vegna reiðnámskeiða fyrir fatlaða hafnað. Jafnframt er áætlað að leggja skólagjöld á nemendur skólanna.
    Í áliti landbúnaðarnefndar sem er samhljóða er lagt til að fjárveiting til niðurgreiðslu á loðdýrafóðri sé tekin upp í fjárlög næsta árs. Minni hlutinn tekur undir þessi sjónarmið.

Samgöngumál.
    Svo virðist sem tekjustofnar til vegamála standist í meginatriðum. Það mun þó hafa í för með sér hækkun á bensíngjaldi um 2 kr. á lítra. Útfærsla á þeim lið bíður þriðju umræðu og verður gerð grein fyrir þeim áhrifum í tekjuhlið fjárlaga.
    Framlög til ferja og flóabáta eru nú tekin af rekstrarfé Vegagerðarinnar og er þar um 530 millj. kr. að ræða. Þar er á ferðinni stefnubreyting þar sem sérstakt framlag til reksturs ferja og flóabáta hefur ekki áður verið tekið eingöngu af fé til vegamála. Á síðasta ári fóru 330 millj. kr. í þennan lið þótt vitað væri að það nægði ekki, sbr. töflu um áætlaðan kostnað við ferjur og flóabáta árin 1993–1996, sjá fskj. II. Það kemur síðan í ljós í fjáraukalögum fyrir árið 1993 þar sem 50 millj. kr. framlag er til ferjureksturs.
    Skerðing á mörkuðum tekjustofnum Vegagerðarinnar er 370 millj. kr. og lögbundnir tekjustofnar Vegagerðarinnar þannig notaðir til tekjuöflunar fyrir ríkissjóð. Þarna eru samtals 900 millj. kr. og er það sama upphæð og ríkisstjórnin kallar framkvæmdaátak í vegagerð á næsta ári eða kr. 900 millj. Framkvæmdaátakið er svo þar að auki fært sem lán hjá Vegagerð sem greiðast skal á næstu árum af mörkuðum tekjustofnum. Minni hlutinn mótmælir þessari málsmeðferð og telur að réttara hefði verið að Vegasjóður héldi sínum tekjustofnum og hið svokallaða framkvæmdaátak hefði verið lækkað um þá upphæð sem nemur skerðingunni. Átakið fer beint í rekstur ferja og flóabáta og sem framlag í ríkissjóð.
    Hafnaáætlun tekur mið af frumvarpi til hafnalaga sem tvisvar hefur verið lagt fram á Alþingi án þess að hljóta afgreiðslu. Það er því ljóst að verði frumvarpið ekki samþykkt á þessu þingi þá breytast forsendur hafnaáætlunar þar sem greiðsluhlutfall ríkisins er þar annað en í núgildandi lögum. Minni hlutinn telur það aðfinnsluvert að miða hafnaáætlun við ósamþykkt lög. Í greinargerð með fjárlagafrumvarpinu er hins vegar sagt að fjárveitingar til hafnamála miðist við gildandi hafnalög. Þarna er ósamræmi á milli.
    Fjarskiptaeftirlit ríkisins er ný stofnun sem á að fjármagnast með sértekjum upp á 56 millj. kr. Þar er verið að auka kostnað þeirra sem þurfa að nota þjónustu stofnunarinnar. Er það í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar sem í síauknum mæli hleður kostnaði við opinbera þjónustu, sem skylt er að nýta, yfir á notendur þjónustunnar.

Ferðamál.
    Virðisaukaskattur á ferðaþjónustu á að taka gildi um áramót samkvæmt ákvörðun fjárlaga fyrir yfirstandandi ár. Sýnt er að það mun verða til þess að draga úr vexti þessarar atvinnugreinar. Þá er þessi skattur alveg sérstaklega erfiður landsbyggðarfólki og atvinnugreinum á landsbyggðinni sem oft þurfa að sækja þjónustu til Reykjavíkur þar sem skatturinn kemur til hækkunar á innanlandsfargjöldum flugfélaganna. Þá veldur skatturinn einnig mismun á milli flugferða innan lands og erlendis og getur orðið erfiður í framkvæmd. Minni hlutinn gagnrýnir þessar álögur sem mismunar fólki eftir búsetu og telur fráleitt að ríkisvaldið standi fyrir slíkri skattlagningu, sjá fskj. I.
    Og enn eru skert lögbundin framlög til Ferðamálaráðs og Ferðamálasjóðs. Þannig er hert að starfsskilyrðum þeirrar atvinnugreinar sem hefur verið helsti vaxtarbroddur í atvinnumálum hérlendis. Skerðing framlags á næsta ári er samkvæmt frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum 134 millj. kr. Ekki er enn vitað hvernig Ferðamálaráð mun bregðast við þessum niðurskurði en ástæða er til að óttast að það muni koma harkalega niður á starfsemi þess og ekki síst draga úr nauðsynlegum úrbótum í umhverfismálum.
    Ferðamálasamtök landshlutanna, sem víða hafa haldið uppi þróttmiklu starfi, þurfa sífellt að standa í harðri baráttu til að fá einhverja smástyrki. Engin leiðrétting fékkst á stöðu þeirra í fjárlögum hjá meiri hluta fjárlaganefndar en samtökin hafa farið fram á að vera á sjálfstæðum fjárlagalið.

Sjávarútvegsmál.
    Niðurskurður fjár til rannsókna í sjávarútvegi og fiskvinnslu annað árið í röð er áhyggjuefni. Í fjárlagaliðnum Gæðaátak, starfsmenntun, markaðsöflun og tilraunir var framlag skorið niður um meira en helming í fyrra, úr 51,2 millj. kr. í 21,3 millj. kr. Í ár er enn sama skerðing til þessa mikilvæga málaflokks. Þetta merkir m.a. að fjárveiting til aflanýtingarnefndar var skorin niður úr 20 millj. í 9 millj. í ár og líkur á að svipað muni endurtaka sig á næsta ári. Fimm millj. kr. hækkun breytir ekki miklu þar um þar sem verkefni undir þessum safnlið eru aukin. Aflanýtingarnefnd er samstarfsverkefni ýmissa aðila, m.a. Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. Á vegum hennar hefur verið veitt fé til ýmissa grunnrannsókna, langtíma rannsóknaverkefna og stutt við nýsköpun í sjávarútvegi og fiskvinnslu.
    Í skýrslu OECD, sem vakti mikla athygli á sl. ári, er bent á að Íslendingar veiti allt of litlu fé til grunnrannsókna, tilraunaverkefna og langtímarannsókna. Þessar greinar eru undirstaða framfara í nútímasamfélagi. Skerðing fjár til rannsókna í sjávarútvegi og fiskvinnslu getur því reynst okkur dýr sparnaður.
    Í áliti sjávarútvegsnefndar um fjárlagafrumvarpið er lýst áhyggjum vegna skerðingar fjár til rannsókna og þróunar í sjávarútvegi. Undir þær athugasemdir tekur minni hluti fjárlaganefndar. Einnig skal bent á þá óþolandi óvissu sem ríkir um fjárveitingar til Hafrannsóknastofnunar sem á þessu ári varð að bjarga með aukafjárveitingu vegna þess að óraunhæfar hugmyndir um sölu aflaheimilda Hagræðingarsjóðs brugðust.

Umhverfismál.
    Fjárlaganefnd barst ítarlegt álit frá umhverfisnefnd þingsins og var það sameiginlegt álit bæði stjórnar og stjórnarandstöðuþingmanna í nefndinni.
    Minni hlutinn áréttar það sem sagt er um Náttúrufræðistofnun Íslands en umhverfisnefnd vekur athygli á því að framsetning í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1994 er ekki í samræmi við athugasemdir við 3. gr. laga nr. 60/1992, um Náttúrufræðistofnun Íslands. Þar er kveðið á um að Náttúrufræðistofnun eigi að hafa sjálfstæðan fjárhag en í því felst m.a. að við afgreiðslu fjárlaga sé tekin ákvörðun um fjárveitingar til hvers seturs fyrir sig og að þau skuli öll hafa eigin stofnananúmer á fjárlögum. Þetta telur minni hlutinn brýnt að gera svo sem fram kemur í áliti umhverfisnefndar.
    Fulltrúar minni hlutans hafa mótmælt því mjög eindregið að Veðurstofu Íslands sé ætlað að hefja gjaldtöku vegna veðurþjónustu fyrir innanlandsflug og að sértekjur stofnunarinnar séu hækkaðar umtalsvert þess vegna. Það er því fagnaðarefni að meiri hluti nefndarinnar gerir nú breytingartillögu þar sem fallið er frá þessum óskynsamlegu hugmyndum. Minni hlutinn telur mikilvægt að tekjustofnar Skipulags ríkisins verði endurskoðaðir svo að stofnunin geti annað lögbundnum verkefnum.
    Að lokum tekur minni hlutinn undir álit fulltrúa stjórnarandstöðunnar í umhverfisnefnd sem telja að í frumvarpi til fjárlaga sé gert ráð fyrir allt of lágum fjárveitingum til umhverfisráðuneytis í heild. Fulltrúarnir lýsa yfir áhyggjum sínum vegna lágra fjárveitinga til Náttúruverndarráðs enn eitt árið og vekja athygli á að ráðinu er ætlaður þriðjungi lægra fé til starfsemi sinnar en það taldi nauðsynlegt til að geta sinnt verkefnum sínum með fullnægjandi hætti.

Lokaorð.
    Í flestum þjóðþingum er það talið meginverkefni þingmanna að setja landi sínu fjárlög. Til fjárlagagerðar eru því gjarnan valdir þeir þingmenn sem langa þingreynslu hafa og mikla þekkingu á ríkisfjármálum vegna starfa sinna innan þings eða utan. Þessi skilningur var enda áréttaður af forsetum Alþingis þegar unnið var að þeirri breytingu að þingið skyldi starfa í einni deild. Lögð var áhersla á að efla sjálfstæði fjárlaganefndar gagnvart framkvæmdavaldinu, sem nokkuð hafði þótt á skorta um árabil, og sérstakur starfsmaður var ráðinn til að vinna með nefndinni. Þá var húsnæðisaðstaða nefndarinnar bætt til muna með því að tekið var á leigu húsið nr. l4 við Austurstræti.
    Forsetar Alþingis bentu á að flokkadrættir um smæstu atriði væru ekki við hæfi þegar fjárlagagerðin væri annars vegar þó að viðurkennt væri að kjörinn meiri hluti mótaði að sjálfsögðu meginstefnu. Rétt minni hlutans skyldi virða en hann skyldi jafnframt sæta rétti meiri hlutans.
    Forsetar töldu ástæðu til að fjárlaganefndarmenn færu til nágrannalands og kynntu sér hvernig fjárlagavinna færi fram þar sem vitað var að menn hefðu náð góðum árangri við fjárlagagerð. Varð Noregur fyrir valinu. Af einhverjum ástæðum fór þó svo að aðeins þrír nefndarmanna tókust þessa ferð á hendur, formaður nefndarinnar, Karl Steinar Guðnason, sem nú hefur látið af þingmennsku, Sturla Böðvarsson og Jóna Valgerður Kristjánsdóttir og fylgdi þeim starfsmaður nefndarinnar, Sigurður Rúnar Sigurjónsson. Skýrsla Jónu Valgerðar um þessa ferð fylgir með þessu nefndaráliti þingmönnum til upplýsingar.
    Það vakti athygli þingmannanna að stjórnarandstæðingur var formaður fjárlaganefndar norska stórþingsins og engar sögur fóru af því að ríkisstjórn Verkamannaflokksins væri í hættu þess vegna. Þar í landi umgangast menn lýðræðið af virðingu og þess vegna virða þingmenn aðra kjörna þingmenn án tillits til flokkspólitískra skoðana. Eftir tveggja ára samstarf við meiri hluta fjárlaganefndar telur minni hluti nefndarinnar fulla ástæðu til að önnur ferð verði farin til að kynna fleiri nefndarmönnum starfshætti þjóðþinga þar sem yfirgangssemi og tillitsleysi er talið rýra traust og virðingu þingsins og vera vísasti vegurinn til aðskilnaðar og vantrausts milli þings og þjóðar.


Alþingi, 8. des. 1993.



Margrét Frímannsdóttir,

Guðmundur Bjarnason.

Jón Kristjánsson.


frsm.



Guðrún Helgadóttir.

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir.




Fylgiskjal I.


Repró, ein bls. (átthagaskattur)





Fylgiskjal II.

Repró, ein bls. (ferjukostnaður)




Fylgiskjal III.



Ferð fjárlaganefndarmanna til Noregs 25.–26. jan. 1993.



    Ferðin var farin til að kynna sér starfsemi fjárlaganefndar norska Stórþingsins og þá aðallega fjárlagavinnuna. Einnig komu starfshættir og skipulag umræðna í Stórþinginu til umfjöllunar. Haldnir voru fundir með nokkrum nefndarmönnum fjárlaganefndarinnar og einnig með Ríkisendurskoðun, fjármálaráðuneytismönnum og riturum og skrifstofustjórum Stórþingsins.
    Vinnan við fjárlagagerðina hefst í raun í desember, 13 mánuðum áður en fjárlagaárið gengur í garð. Nánari grein er gerð fyrir ferli fjárlaganna í fjárlaganefnd og fagnefndum í sérstakri skýrslu. Ég ætla að stikla hér á því sem mér fannst sérstaklega athyglisvert og kem þá einnig inn á þingsköp og starfsáætlanagerð norska þingsins.
    Þegar fjármálaráðherra leggur fram fjárlagafrumvarp í fyrstu viku október fara engar umræður fram. Frumvarpinu er vísað til fjárlaganefndar og einstökum köflum frumvarpsins er vísað til viðkomandi fagnefnda. Fjárlaganefndin vinnur málið í nefndinni í um einn mánuð og leggur fram nefndarálit (Dokument I) í byrjun nóvember. Þá fer fram umræða í Stórþinginu og samið er um það fyrir fram hve langan tíma hún á að taka. Venjulega eru það tveir dagar, tíu tímar hvorn dag. Tillaga um tímamörkin er borin upp í þinginu og er þá hægt að gera athugasemdir og hugsanlega lengja eða stytta tímann. Ræðutíma er skipt niður á flokka eftir þingstyrk þeirra og menn þurfa að setja sig á mælendaskrá daginn áður en umræðan fer fram. Ræðumenn mega tala tvisvar, 30 mínútur í fyrra skiptið og tíu mínútur í seinna skiptið. Einnig eru leyfð fimm andsvör eftir hverja ræðu. Daginn sem umræðan fer fram er hægt að setja sig á mælendaskrá en þá fær ræðumaður aðeins þrjár mínútur til umráða tvisvar sinnum. Tímamörk sem ákveðin hafa verið standast því nokkuð, geta í mesta lagi farið 2–4 tíma fram úr áætlun í heildina tekið og er þá umræðu haldið áfram fram eftir kvöldi seinni daginn þar til henni lýkur. Af 165 þingmönnum Stórþingsins er algengt að um helmingur þeirra taki til máls um fjárlögin.
    Þessar reglur gilda einnig um önnur mál þingsins en þá er venjulega ákveðinn tími styttri, t.d. er algengt að fjórir tímar séu teknir í umræður um lagafrumvörp. Þau eru fyrst tekin fyrir í viðkomandi fagnefnd sem leggur þau fyrir óðalsþingið og ákveður um leið í samráði við forsætisnefndina hve langan tíma umræðan taki. Forseti skiptir tímanum á milli flokka og þingmenn raða sér á þann tíma. Einstakir þingmenn geta fengið orðið í þrjár mínútur tvisvar. Framsögumenn tala yfirleitt í 15–20 mínútur.
    Fagnefndir skila síðan af sér hver af annarri sínum málaflokki í fjárlagafrumvarpinu beint inn í Stórþingið (ekki með milligöngu fjárlaganefndar) og umræða um það fer fram eftir því sem það berst og lýkur í nóvember. Frumvarpið getur tekið nokkrum breytingum í meðferð nefndanna en þeim er þó uppálagt að halda sig innan rammans. Þær fjalla bæði um tekjur og gjöld fyrir viðkomandi málaflokk. Verkaskipting er í föstum skorðum í öllum nefndum. Hver nefndarmaður ber ábyrgð á einum málaflokki nefndarinnar, t.d. er í fjárlaganefnd einn með skattamál, annar með gengismál o.s.frv. Í samgöngunefnd er einn með flugmál, annar með hafnir, þriðji með vegamál o.s.frv.
    Þegar allar fagnefndir hafa skilað af sér er tekin fyrir svokölluð „salderingstillaga“ ríkisstjórnar í fjárlaganefnd og rædd þar í um viku. Að því loknu leggur fjárlaganefnd fram endanlegar tillögur á þingskjali sem merkt er II. Þá er kominn miður desember og lokaumræða um fjárlög og atkvæðagreiðsla er afgreidd á einum degi í Stórþinginu.
    Þegar ég spurði hvort aldrei væru ótímabundnar umræður í þinginu var svarið að það hefði verið fyrir 50 árum og fyrir allmörgum árum var tímalengd ein klukkustund á mann en nú er hálf klukkustund hámark.
    Ráðherrar taka varamenn inn þegar þeir taka sæti í ríkisstjórn og starfa ekki sem þingmenn en þeir sitja í þinginu þegar mál sem þá varða eru á dagskrá.
    Hver þingmaður situr aðeins í einni þingnefnd. Nefndafundir eru einu sinni til tvisvar í viku og þingfundir þrjá daga í viku. Í fjárlaganefnd situr a.m.k. einn frá hverjum þingflokki, annars fer það eftir þingstyrk. Formaður fjárlaganefndar er oftar en ekki úr stjórnarandstöðu en varaformaður úr stjórnarflokknum. Formenn annarra nefnda eru kosnir eftir þingstyrk og því talsvert um það að stjórnarandstaðan eigi formenn nefnda.
    Minnihlutaríkisstjórn þarf að hafa 1% af fjárlögum til þess að koma til móts við óskir þeirra sem vilja styðja hana í þinginu og getur verið um 3–4 milljarða norskra króna að ræða. En þegar á heildina er litið verða ekki miklar breytingar á fjárlagafrumvarpinu í meðförum þingsins og 5% af fjárlögum má færa milli ára.
    Yfirleitt er þinghald norska þingsins í mjög föstum skorðum og það er öruggt að þingmenn þar eiga hægara um vik með að skipuleggja tíma sinn en íslenskir kollegar þeirra. Hægt er að velta fyrir sér hvort hið norska lýðræði sé nokkru lakara en hið íslenska þrátt fyrir allströng tímamörk í umræðum. Og fullyrða má að umræður hér á Alþingi fari á stundum fram úr því sem eðlilegt getur talist. Hins vegar þarf á öllum tímum að gæta þess að vinnubrögð séu þannig að sjónarmið, bæði stjórnar og stjórnarandstöðu, komist skilmerkilega á framfæri. Hér er t.d. formennsku í nefndum ekki skipt eftir þingstyrk eins og í Noregi. En ætla má að þar með sé stjórnarandstaðan gerð ábyrgari fyrir afgreiðslu mála.

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir.