Ferill 603. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 603 . mál.


1163. Nefndar

álit

um till. til þál. um breyt. á þál. frá 2. maí 1988, um störf og starfshætti umboðsmanns Alþingis.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið sem felur efnislega í sér að umboðsmaður Alþingis hafi frest til 1. september ár hvert til að skila skýrslu um starf sitt til Alþingis í stað 1. mars. Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar með svofelldum

BREYTINGUM:



    Við 1. gr. Í stað „nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, með síðari breytingum“ komi: um þingsköp Alþingis.
    Við 2. gr. Í stað „nr. 19/1991“ í a- og b-liðum komi: um meðferð opinberra mála.

    Eyjólfur Konráð Jónsson og Ólafur Þ. Þórðarson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 2. maí 1994.



Sólveig Pétursdóttir,

Gísli S. Einarsson.

Guðni Ágústsson.


form., frsm.



Björn Bjarnson.

Ingi Björn Albertsson.

Kristinn H. Gunnarsson.



Anna Ólafsdóttir Björnsson.