Skráning skipa

77. fundur
Fimmtudaginn 26. janúar 1995, kl. 13:56:43 (3545)


[13:56]
     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Herra forseti. Ég held að ég skuli ítreka það sem stendur hér í greinargerð. Við erum hér að tala um texta sem hefur verið í lögum og féll niður af misgáningi þegar lögunum var breytt þannig að við höfum nokkra reynslu af þessu orðalagi. Og ef svo er nú að ekki sé rétt farið með tunguna í þessum lagatexta, þá hefur fleiri orðið á en mér í þeim efnum, meira að segja Alþingi sjálfu þegar þessi lagatexti var ákveðinn á sínum tíma.