Vegáætlun 1995--1998

77. fundur
Fimmtudaginn 26. janúar 1995, kl. 16:35:25 (3593)


[16:35]
     Árni M. Mathiesen (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það var ánægjulegt að heyra að það var ekki blind andstaða við þær tillögur sem ríkisstjórnin hefur lagt fram í huga hv. þm. Jóns Kristjánssonar. En það virðist hins vegar loða við Framsfl. og hv. þm. hans að í vegamálum eigi að mæla allt og leggja við með lengdarmetrum og í kjördæmamálum eigi að vega allt og meta í fermetrum.