Vegáætlun 1995--1998

77. fundur
Fimmtudaginn 26. janúar 1995, kl. 17:25:44 (3610)


[17:25]
     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég ítreka það sem ég sagði. Ég á svolítið erfitt með að ímynda mér það að þingmaður Vestf. meini það að hann vilji halda vegamálum nú í óvissu.
    Ég vil á hinn bóginn út af girðingamálunum aðeins segja að þar hefur verið langur slóði og eftir þeim upplýsingum sem ég hef frá Vegagerðinni hefur hann heldur verið að minnka síðustu árin, heldur verið að minnka og leita jafnvægis. En ef menn vilja fara hraðar í því þá er ekki um annað að gera en

taka það af nýbyggingarfé og ég hef ekki treyst mér til þess að fara hraðar en þessi tillaga ber með sér. En það miðar í rétta átt þótt hægt fari í þessu öllu.