Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 30. jan. 1995:
,,Þar sem ég af persónulegum ástæðum get ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varaþm. Alþb. í Suðurlandskjördæmi, Ragnar Óskarsson kennari, Vestmannaeyjum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Ragnar Óskarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og kjörbréf hans hefur verið rannsakað og hann er boðinn velkominn til starfa.