Framkvæmd búvörusamningsins

84. fundur
Föstudaginn 03. febrúar 1995, kl. 15:27:32 (3892)


[15:27]
     Páll Pétursson (um fundarstjórn) :
    Herra forseti. Ég tel að úrskurður herra forseta sé eftir atvikum réttur. Ekki það að ekki megi tala um landbúnaðarmál við hv. 4. þm. Norðurl. e., Steingrím J. Sigfússon. En ég vek atygli á því að hann er ekki með fjarvist í dag og það finnst mér skipta verulegu máli. Hann hefur ekki beðið um fjarvistarleyfi og hann sinnir ekki þingskyldum sínum á þessum degi og þess vegna finnst mér tæplega efni til þess að rökstyðja þá kröfu sem hér hefur komið fram frá Alþb.