Framkvæmd búvörusamningsins

84. fundur
Föstudaginn 03. febrúar 1995, kl. 16:16:04 (3899)


[16:16]
     Hjörleifur Guttormsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Hv. þm. Páll Pétursson gerði nákvæmlega það sem ég bjóst við, að staðfesta það sem ég var að segja hér frá, hvernig klifað yrði á þessari lummu hvað svo sem hver segði. Menn ættu að taka eftir því þegar hv. þm. fer að tala ofan í sig, setur í kverkarnar og fer að tala ofan í sig. Það gerði hann hér og hann á áreiðanlega eftir að láta svipað í sér heyra bæ frá bæ í Norðurl. v. og þeir framsóknarþingmenn sem eru ekki sómakærari en svo að fara að nýta slíka lummu. Það mun ekki koma á óvart.