[17:38]
Halldór Ásgrímsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Það eru ýmsir gallar við samninginn við Evrópskt efnahagssvæði og það er ýmislegt í honum sem ég vildi öðruvísi hafa. Ég býst við að það eigi við um flesta þingmenn. En hann er hins vegar staðreynd. Það er alveg rétt hjá hv. þm. að ég hef farið nokkrum sinnum til Brussel og talað þar við ýmsa aðila. Ég hef aldrei nokkurn tímann verið rekinn á dyr, mér hefur verið afar vel tekið. Ég hef lært ýmislegt af þeim samtölum og orðið margs fróðari um það hvers megi vænta í framtíðinni. Það er alveg rétt að Bangemann sagði mér það að eitthvað sem heitir áheyrnaraðild að ýmsum nefndum og ráðum væri ekki samrýmanlegt stefnu Evrópusambandins. En hann fullvissaði mig um það að þær pólitísku viðræður sem gert er ráð fyrir í samningnum um Evrópskt efnahagssvæði þyrfti að þróa. Ég ætla ekki að fara út í að ræða það neitt frekar. Ég tel að það sé af hinu góða að alþingismenn og forustumenn stjórnmálaflokka hitti slíka menn og ræði við þá um íslenska hagsmuni og ég tel mig með því vera að þjóna hagsmunum
Íslands og tel það nauðsynlegt og geri það í þeim tilgangi. Mér finnst það með öllu ósæmilegt að vera að koma hér upp og reyna að gera það vafasamt og láta í það skína að menn hafi verið reknir á dyr. Það er rétt að hv. þm. hefur fengið afrit af skýrslu frá þessari ferð og ég bið hann um að finna því stað hvers vegna hann leyfir sér að fara með slík ummæli að ég hafi verið rekinn á dyr. Það er honum ósæmilegt eins og margt annað sem hann hefur sagt hér í dag.