Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

90. fundur
Fimmtudaginn 09. febrúar 1995, kl. 17:45:14 (4139)


[17:45]
     Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég hef enga tilraun gert til að ata Alþb. auri. Það sem ég hef gert er að vitna í ummæli mæts manns og sagt að það sé mín skoðun að á þessum degi hafi Alþb. hrokkið aftur í gamla farið og einangrað sig í íslenskum stjórnmálum. Það er ekki af mínum völdum, það var ekki að mínum óskum. Það var hins vegar þeirra ákvörðun.