[15:21]
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
Virðulegi forseti. Við erum að greiða atkvæði um frv. til laga um samsetta flutninga o.fl. vegna aðildar Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu. Í minni hluta samgn. teljum við að um algerlega óhæfa lagasetningu sé að ræða og leggjum því til að frv. verði vísað til ríkisstjórnarinnar og erum við með sérstakt nefndarálit um það. Þess vegna munum við ekki greiða atkvæði með þessu frv. heldur að því verði vísað frá og kvennalistakonur munu a.m.k. greiða atkvæði gegn frv. því að slíka lagasetningaraðferð, sem lögð er til í frv., teljum við í hæsta máta mjög óeðlilega og til þess fallna að ýta undir það viðhorf sem heyrist oft að Alþingi sé algerlega ofurselt framkvæmdarvaldinu og hlutverk þess eingöngu afgreiðslustofnun.