Samsettir flutningar o.fl. vegna EES

91. fundur
Mánudaginn 13. febrúar 1995, kl. 15:22:14 (4159)


[15:22]
     Pálmi Jónsson :
    Hæstv. forseti. Þessi liður í þingsköpum er tæplega ætlaður til þess að endurtaka umræðu um mál en vegna orða hv. 6. þm. Vestf. vil ég geta þess að ákvæði frv. fela í sér heimildir til ráðherra til að setja reglugerðir til staðfestingar á gerðum EES-samningsins að því er varðar flutningastarfsemi milli landa í Evrópu og innan landa Evrópusambandsins sem geta orðið okkur Íslendingum til hagsbóta en leggja ekki sérstakar kvaðir á okkur að öðru leyti.