[16:30]
Björn Bjarnason :
Hæstv. forseti. Við lifum á tímum sem eru kenndir við upplýsingabyltinguna þar sem menn eru að stíga ný skref til upplýsingamiðlunar og tileinka sér nýja tækni til þess að geta verið virkir þátttakendur í þeirri byltingu. Ég hef skilið það svo að samruni eða samstarf þeirra tveggja fyrirtækja sem hér hefur sérstaklega verið rætt um miði að því að Íslendingar geti orðið virkari þátttakendur í þessari byltingu
og hér verði fyrir hendi aðstaða og þekking til þess að nýta sér hana til fullnustu. Ég sé ekki að það sé neitt athugavert við það að fyrirtæki sameinist, einkaaðilar sameinist um slíka starfsemi og tel það því miklu meira í samræmi við tímann heldur en mæla fyrir um það að ríkið auki hlut sinn á sviði fjölmiðlunar. Ég tel að það hafi verið tímanna tákn á sínum tíma þegar Ríkisútvarpið var stofnað að þá voru menn að glíma við tæknileg vandamál sem ekki voru á færi einstaklinga að leysa. Nú eru breyttir tímar og þá eiga einstaklingar að láta að sér kveða með þeim hætti sem skynsamlegast er og það er að gerast í þessu máli.
Það er einnig rangt að halda því fram að hér hafi þrengst um á fjölmiðlamarkaði. Þvert á móti hafa tæknibreytingarnar leitt til þess að það er miklu auðveldara en áður var að stunda fjölmiðlun, bæði í útvarpi og einnig í blaðaútgáfu, enda sjáum við það um land allt og hvarvetna þar sem menn hafa áhuga á að láta að sér kveða að þeir geta gefið út blöð og þeir geta opnað útvarpsstöðvar þannig að það er algerlega rangt að halda því fram að skoðanamyndun í landinu sé að færast á færri hendur. Þvert á móti hefur tæknin leitt til þess að það geta fleiri látið að sér kveða.
Um það hvort þurfi að setja sérstaka löggjöf varðandi þessa starfsemi þá dreg ég það í efa. Ég held að sú löggjöf sem er nú fyrir hendi geri mönnum kleift að stunda þessa starfsemi, bæði blaðaútgáfu, útvarpsstarfsemi og sjónvarpsstarfsemi með þeim hætti að fullnægjandi sé fyrir hagsmuni hins almenna borgara. Og ég mótmæli því að einhver þróun hafi átt sér stað hér í landinu sem miðar að því að færa upplýsingamiðlun á færri hendur. Hið gagnstæða hefur í raun og veru gerst.