Náttúruvernd

94. fundur
Þriðjudaginn 14. febrúar 1995, kl. 14:10:30 (4262)


[14:10]
     Frsm. meiri hluta umhvn. (Petrína Baldursdóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég get fullvissað hv. þm. Hjörleif Guttormsson um það að meiri hlutanum er ekki sama um þetta mál. Hann má hafa sína skoðun á því hvernig honum fannst framsögumanni til takast. Ég bendi honum á að breytingartillögur og nefndarálit meiri hluta hafa legið fyrir í tvo sólarhringa og hann hefur getað kynnt sér það.