[13:20]
Jón Kristjánsson (andsvar) :
Herra forseti. Ræða mín fjallaði um verkstjórn almennt í ríkisstjórninni. Ég sé að hæstv. félmrh. vill tala hlýlega um hæstv. forsrh. núna á síðustu vikum fyrir kosningar og getur það kannski bent til að hæstv. félmrh. hafi von um að það gangi saman með þessum aðilum aftur eftir kosningar en ég vona að það verði ekki afl til þess þegar fólkið hefur sagt sitt og vona að það verði einhverjir aðrir sem halda um þennan stjórnvöl styrkari hendi þegar kosið hefur verið 8. apríl.