[17:08]
Fyrirspyrjandi (Kristín Ástgeirsdóttir) :
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. umhvrh. fyrir þessi svör. Það er greinilegt að það hefur víða verið leitað fanga eftir hugmyndum til þess að sinna þessu umhverfisverndarári hér og ég held að það veiti ekki af vegna þess að það er ekki síst fræðsluþátturinn sem mér finnst að við höfum ekki sinnt sem skyldi hér á landi. Við höfum dágóðan skilning á því hve mikilvægt lífríki hafsins er fyrir okkur og að koma í veg fyrir mengun þess. En við megum hyggja miklu betur að okkar nánasta umhverfi og við þurfum að ala Íslendinga upp í virðingu við umhverfið og ég held einmitt að fræðsluþátturinn í þessu sé mjög mikilvægur.
Ég fagna því sérstaklega að það skuli eiga að gera átak í fjöruhreinsun því að ég hef séð það á ferðum mínum um landið að þar er víða pottur brotinn og hrein hörmung aðð sjá ástandið og þarf auðvitað að koma í eitthvert horf eða eitthvert lag öðruvísi en að það sé gripið til átaks á nokkurra ára fresti, þó að það sé í sjálfu sér ágætt að virkja fólk til þess að hreinsa umhverfið. En ég vona að þetta gangi allt eftir sem hæstv. umhvrh. hefur kynnt hér og ítreka það að ég held að við eigum mjög mikið verk óunnið í umhverfisvernd hér á landi og í því að skapa vitund, sterka vitund almennings fyrir því hve mikilvæg náttúran er og ekki síst það að við ætlum íslenskri náttúru að skapa okkur tekjur í framtíðinni. Við ætlum að efla ferðamannaþjónustu og það gerist ekki öðruvísi en að við séum sjálf meðvituð um það hvernig best er að umgangast íslenska náttúru og þá ekki síst okkar nánasta umhverfi.