Vernd barna og ungmenna

100. fundur
Mánudaginn 20. febrúar 1995, kl. 18:17:44 (4544)


[18:17]
     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hér er hæstv. ráðherra kominn í sinn venjulega leik með útúrsnúningana. Í nefndinni höfum við bréf frá ráðherranum með athugasemdum sem hefur hvorki verið dregið til baka né komið annað bréf sem tekur af efni þess þannig að ég vænti þess að ráðherrann svari efni fyrirspurnarinnar.