Vernd barna og ungmenna

100. fundur
Mánudaginn 20. febrúar 1995, kl. 18:18:22 (4545)


[18:18]
     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. á sjálfur sæti í þeirri nefnd sem hefur fjallað um málið. Hann skrifar undir nefndarálitið. Honum er kunnugt um að fullt samkomulag hefur tekist milli ráðuneyta. Það er ekki vaninn að menn dragi bréf til baka ef fyrir liggur að samkomulag hefur tekist. Honum hefur verið tjáð þetta, í nefndinni, virðulegi forseti. Þetta er í annað sinn sem hv. þm. segir þetta hér úr þessum ræðustól. Honum er fullkunnugt um málið.