[15:37]
Guðni Ágústsson :
Hæstv. forseti. Hér er í gangi deila sem bitnar á bændum en snýst fyrst og fremst um það að Rarik og Landsvirkjun virðast ekki geta komið sér saman um reglur. Landsvirkjun er glæsilegt fyrirtæki í eigu Íslendinga en því miður minnir það mig á nískan búra, eignamann, svipaðan Bárði á Búrfelli sem átti skemmur sínar fullar af feitu kjöti og tólg en tímdi ekki að gefa sínu fólki almennilega að éta. Landsvirkjun á 700 gwst. af rafmagni sem enginn getur notað og enginn notar. Það er eins og þeir skilji ekki enn að á Íslandi ríkir lögmál um framboð og eftirspurn.
Það er ófært, hæstv. ráðherra, að Landsvirkjun komist upp með það miðað við þessar aðstæður að beita aflgjaldi sem er ekki raunhæft hjá Landsvirkjun við núverandi aðstæður þegar umframframleiðslugetan er eins og ég sagði 700 gwst. Blanda rennur enn til sjávar án þess að nokkur nýti hana. Ég tel að þetta mikla fyrirtæki, hæstv. iðnrh., verði að taka þátt í nýsköpun á Íslandi. Við eigum mikla möguleika í mikilvægustu stóriðju heimsins sem er matvælaframleiðslan. Við höfum sýnt það í sjávarútvegi. Við eigum tækifærin í landbúnaði. Þess vegna á að taka þátt í tilraunum með lýsingu í garðyrkjunni og skaffa eitthvað af þessari offramleiðslu á föstu, ódýru verði. Það á einnig að gera í fiskeldinu og fleiri greinar mætti nefna til.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að leggja margar bænaskrár á borð þessarar hæstv. ríkisstjórnar sem nú er að fara frá þó að ég hvetji hæstv. iðnrh. til þess að beita afli sínu þær sjö vikur sem hann á eftir að sitja í ráðherrastól til þess að ná árangri í að Landsvirkjun verði að taka þátt í því að skapa hér störf og framleiða holl matvæli.