[00:01]
Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
Hæstv. forseti. Mér líkar ekki þessi sperringstónn í hæstv. ráðherra og er fullkomlega ástæðulaust að snúa út úr orðum mínum. Ég bar einfaldlega fram málefnalegar spurningar um þennan útgjaldabakgrunn málsins og hæstv. ráðherra staðfesti auðvitað óbeint það sem ég sagði. Það sem ég spurði um: Er það svo, að af 3--4 milljarða kr. virðisaukaskattstekjum ríkisins af framkvæmdum upp á 15--20 milljarða sé þessi heimild til þess að greiða allt að 2 milljörðum og það er það sem hæstv. ráðherra staðfesti.
Hins vegar kom hæstv. ráðherra sér undan því að svara hvort einhver stefna hefði verið mótuð um það hvernig þessar heimildir verða nýttar, því það stendur hér: allt að 200 millj. samkvæmt því sem sett er inn í fjárlög hverju sinni. Og ef t.d. núv. stjórnarflokkar hefðu skuldbundið sig til þess að hafa þetta 200 millj., þá væri eitthvert hald í því, kannski einskis virði, því það er því miður ekki hægt að útiloka að annar þeirra gæti orðið t.d. í ríkisstjórn einhvern tíma á næstu árum, þó það sé sem betur fer ólíklegt.
Ég get alveg staðið við það sem ég sagði, hvort sem sveitarfélögin eru meira eða minna ánægð með þetta frv., að ég hef efasemdir um að þetta verki nægjanlega hvetjandi til þess að þetta stórátak fari fram. En auðvitað er frv. mikið betra en ekki neitt. Auðvitað er það mikið betra en ekki neitt að endurgreiða kannski helming eða rúman helming af þessum virðisaukaskatti, skárra væri það nú, heldur en að láta sveitarfélögin sitja uppi með hann óbættan. Ég skil það vel að fulltrúar sveitarfélaganna hafi viljað ná þessu fram og vilji ná þessu fram. Það er alrangt að ég ætli að fara að leggja stein í götu þessa frv., en það hlýtur að mega eiga skoðanaskipti við hæstv. ráðherra án þess að það komi hérna á honum ranghverfan í ræðustólinn út af svona máli og gera mönnum upp þær sakir að þeir ætli að fara að stoppa hér einhver mál eða verða þversum, það er með öllu ástæðulaust. Það eru mjög nýtilegir hlutir í þessu frv. eins og síðari mgr. 4. gr., um minni sveitarfélögin. Hún er mjög mikilvæg. En það breytir ekki hinu að það er mín sannfæring að það þyrfti að gera meira til þess að koma þessu stórátaki betur á rekspöl.