[00:55]
Sturla Böðvarsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Varðandi ræðu hv. 5. þm. Vestf. vil ég segja og minna á það, að það var fyrir daga EES-samningsins sem sett var reglugerð um fráveitur í tíð þáv. hæstv. heilbrrh.- og trmrh., Guðmundar Bjarnasonar, sem ég tel að hafi nálgast mjög þær kröfur sem hv. þm. nefndi. Þannig að það eru ekki einungis EES-reglur sem þarna er um að að ræða.
Varðandi þær ströngu reglur sem nefndar eru þá vil ég segja það að ég held að það sé óumflýjanlegt fyrir okkur Íslendinga að uppfylla kröfur sem aðrar þjóðir setja á sviði umhverfismála, að því marki sem þess er kostur, þannig að við getum staðið undir því að hér sé sem mestur hreinleiki, hér sé umhverfið í sem allra besta standi eins og nokkur kostur er, þannig að það verði okkur ekki fótakefli í samkeppninni um framleiðslu, ekki síst á sjávarafurðum og þvílíkum hlutum.
Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um það sem hv. þm. nefndi hér, en að sjálfsögðu veit ég um þær reglur sem gilda um endurgreiðslu á virðisaukaskatti. En eins og ég sagði í minni ræðu, við getum auðvitað endalaust óskað eftir því að ríkisvaldið gefi eftir af sínum tekjum sem grundvallast á þeirri löggjöf sem við höfum hér sett.