[01:38]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég gleðst yfir því að hæstv. fjmrh. skuli nú vera farinn að bera það fyrir brjósti að mál komist til nefndar. Öðruvísi mér áður brá fyrir örstuttu síðan þegar ríkisstjórnarflokkarnir gerðu allt sem
í þeirra valdi stóð til þess að mál fengju ekki lýðræðislega umfjöllun og kæmust ekki til nefndar.