[14:38]
Ragnar Arnalds (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég er fullkomlega sammála hv. þm. Halldóri Ásgrímssyni að það er óhjákvæmilegt að ræða í þessu samhengi hin stórfurðulegu vinnubrögð hæstv. ríkisstjórnar, sem kemur með þessa tillögu um sameign þjóðarinnar á fiskstofnunum á nákvæmlega sama tíma, sama daginn og því er lýst yfir í stjórnarskrárnefnd þingsins að það þýði ekkert að ræða það mál frekar og að það verði að ljúka allri frekari tillögugerð. Þessari tillögu sem ég hafði margsinnis flutt í nefndinni og hliðstæðum tillögum er þar með hafnað endanlega, en á sömu mínútunum er svo ríkisstjórnin aftur á móti að ræða þessa tillögu í sinn hóp án nokkurs samráðs við forustumenn flokkanna í þinginu og án samráðs við sína þingflokka. Þetta eru auðvitað svo yfirgengileg vinnubrögð að það er eðlilegt að þetta sé tekið hér upp og ég er ósammála virðulegum forseta þingsins að þetta eigi ekki hér heima í þessari umræðu.