Stjórnarskipunarlög

104. fundur
Fimmtudaginn 23. febrúar 1995, kl. 16:31:52 (4814)


[16:31]
     Ragnar Arnalds (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég tel að stéttarfélög séu einn af grundvallarþáttum þess stjórnskipulags sem við búum við og ég er satt best að segja mjög undrandi á því að hv. þm. Björn Bjarnason skuli ekki vera sömu skoðunar.