[20:53]
Gísli S. Einarsson (andsvar) :
Frú forseti. Ég vil leggja hér inn nokkur orð undir þessu andsvarsformi sem meðflm. þessa frv. Það að gerast meðflm. eða flm. að þessu frv. var töluvert umhugsunarefni og ég játa að það er ekki í samráði við mína flokksfélaga að ég er meðflm. En þar sem ég veit að minn flokkur er umburðarlyndur og hefur skilning á vandamálum þeirra bænda sem illa eru staddir lét ég slag standa, jafnvel þó að bændur sem um er að ræða hafi í blindni fylgt því kerfi sem er að rústa afkomu þeirra. Í raun er ég búinn að lýsa því að ég vil afnema höft og það helsi sem landbúnaður býr við. Kerfinu sem Framsfl. og Sjálfstfl. með dyggum endahnúti Alþb. hefur fært bændur Íslands í. Ég vil ekki bera neina ábyrgð á því. En mér er ljóst að það er ekki unnt að afnema þennan óhugnað með einu pennastriki, þess vegna vel ég þessa leið. En á komandi tímum sem vonandi fara batnandi fyrir bændur sem og aðra Íslendinga með EES-samningum, GATT-samningum og e.t.v. fljótlega með aðild að ESB verður hlutur bænda með allt öðrum og betri hætti en er í dag og þá mun verða hægt að henda búvörulögunum fyrir róða, veita bændum framleiðslufrelsi eins og eðlilegt er.