Grunnskóli

105. fundur
Föstudaginn 24. febrúar 1995, kl. 15:19:01 (4973)


[15:19]
     Frsm. 2. minni hluta menntmn. (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég geri ekki athugasemdir við það þó að hæstv. menntmrh. tali í þessari umræðu, að sjálfsögðu ekki, því að ég hef borið fram fyrirspurnir til hans og eins til hv. formanns menntmn., sem hún hefur reyndar ekki svarað enn þá. En mér finnst það lítilsvirðing af hæstv. menntmrh. að vera með slíkar alhæfingar hér í umræðunni, að ef stjórnarandstæðingar bera fram rök gegn máli sem hann ber ábyrgð á þá séum við með rugl og ég mótmæli því.