Útsendingar sjónvarps og útvarps til fiskimiða

105. fundur
Föstudaginn 24. febrúar 1995, kl. 16:51:17 (4989)

[16:51]
     Frsm. menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) :
    Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nál. um till. til þál. um útsendingar sjónvarps og útvarps til fiskimiða frá menntmn.

    Nefndin hefur fjallað um þingsályktunartillöguna sem kveður á um að kannaðir verði kostir til að bæta útsendingar sjónvarps og útvarps til fiskimiða. Málið var áður flutt á 116. og 117. löggjafarþingi.
    Nefndin fékk á fund sinn til umfjöllunar á 117. löggjafarþingi Harald Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóra fjarskiptasviðs Pósts og síma, og Eyjólf Valdimarsson, framkvæmdastjóra tæknideildar Ríkisútvarpsins. Þá studdist nefndin við umsagnir frá 117. þingi frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Ríkisútvarpinu, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Slysavarnafélagi Íslands og útvarpsráði. Einnig studdist nefndin við gögn frá Ríkisútvarpinu og Pósti og síma. Þess ber að geta að til menntamálanefndar hefur einnig verið vísað öðru máli um skylt efni, þingsályktunartillögu um dreifingu sjónvarps og útvarps, 301. máli, en nefndin hefur ekki fjallað um það mál þar sem umsagnir liggja ekki fyrir.
    Menntamálanefnd bendir á að ítrekað hefur verið fjallað um þetta efni á Alþingi og fram hefur komið mikill áhugi á málefninu. Skýr afstaða þingmanna kemur fram í samþykkt Alþingis frá 11. maí 1988 þar sem segir:
    ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta nú þegar gera kostnaðar- og framkvæmdaáætlun um að útsendingar Ríkisútvarpsins, þ.e. hljóðvarps og sjónvarps, náist hvar sem er á landinu og á helstu fiskimiðum við landið.
    Áætlunin miðist við að hægt verði að framkvæma þetta verkefni fyrir árslok 1991.``
    Fram kom í umfjöllun menntamálanefndar að á undanförnum árum hafa verið kannaðir möguleikar og kostnaður við útsendingar til alls landsins og helstu fiskimiða og niðurstaða slíkrar athugunar var m.a. kynnt menntamálaráðherra í árslok 1991. Nefndin telur nauðsynlegt að fram fari ítarleg könnun á þeim kostum sem til greina koma varðandi framangreindar útsendingar þannig að sem fyrst liggi fyrir hvort finna megi viðunandi lausn og leggur því til að tillagan verði samþykkt.
    Menntmn. stendur einróma að þessu nál.