[00:42]
Umhverfisráðherra (Össur Skarphéðinsson) :
Virðulegi forseti. Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson heldur því fram að eitthvað hafi gerst í hv. heilbr.- og trn. og það er alveg ljóst að eitthvað hefur gerst. Eitt af því sem til að mynda hefur gerst þar er það að þingmenn og fulltrúar stjórnarandstöðunnar hafa ekki treyst sér til þess að fylgja fulltrúa Alþfl. í nefndinni sem hefur lýst því yfir að hann er reiðubúinn til þess að afgreiða málið út. Það er alveg ljóst að það eru fulltrúar stjórnarandstöðunnar sem hafa ekki treyst sér til þess að afgreiða þetta mál. Og ég vil, virðulegi forseti, í tilefni af ræðu hv. þm. Ingibjargar Pálmadóttur inna hana og Framsfl. eftir því í ljósi þessarar loðnu yfirlýsingar sem hér var flutt af hálfu Framsfl.: Hver er afstaða Framsfl. og hv. þm. til þessa frv.?