[01:22]
Sigbjörn Gunnarsson :
Virðulegi forseti. Aðeins vegna spurningar hv. þm. Guðna Ágústssonar þá vil ég taka fram að þó að ekki sé það venja að upplýsa hvað gerist á þingflokksfundum þá er mér hins vegar ljúft og skylt að skýra frá því að þegar málið var tekið fyrir á þingflokksfundi Alþfl. þá var það samþykkt einum rómi að frv. skyldi lagt fram og það þýðir auðvitað í megindráttum eða þýðir einfaldlega að þingflokkurinn muni styðja frv.