[01:23]
Geir H. Haarde :
Virðulegi forseti. Ef ekki væri hér alvarlegt mál á ferðinni þá mætti kannski segja sem svo að margt er sér til gamans gert á síðustu nóttu kjörtímabilsins og síðasta næturfundi þessa þings. ( Gripið fram í: Þetta er nú ekkert grín.) En ég vil gjarnan svara hv. 5. þm. Suðurl. vegna þess að hann beindi til mín fyrirspurn og inn í það blandast nokkur mikilvæg atriði sem ég hélt satt að segja að honum væru kunn um meðferð þingmála á vegum ríkisstjórna því hann hefur verið viðloðandi þetta þing og þessa stofnun nokkuð lengi og hans flokkur aðili að ríkisstjórn um 20 ára skeið samfellt.
Auðvitað er það þannig að stjfrv. koma ekki fram í nafni ríkisstjórnar nema um þau hafi áður verið fjallað í þingflokkum ríkisstjórnarinnar. En stjfrv. eru misjafnlega mikilvæg. Sum eru þess eðlis að þau eru það sem kallað er ,,kabinett``-spursmál á erlendum tungumálum, þ.e. ríkisstjórnir standa eða falla á grundvelli þess hvort slík mál ná fram að ganga. Síðan hafa auðvitað einstakir þingmenn sinn rétt, eins og öllum er kunnugt, samkvæmt stjórnarskrá. Í sumum málum ganga mál þannig fram frá þingflokkum að við þau eru ekki gerðar athugasemdir. Í öðrum málum, eins og til að mynda í þessu, áskilja einstakir þingmenn sér rétt til þess að flytja brtt. eða fylgja þeim eða hafa fyrirvara um afstöðu sína til málsins. Í þessu máli var það þannig hjá okkur í okkar þingflokki.
En þá kem ég kannski að kjarna málsins: Vegna hvers var það? Vegna hvers er það að að menn hafa haft fyrirvara um þetta mál? Á ég að segja ykkur það? ( Gripið fram í: Já, já.) Það er vegna þess að um þetta mál er mikill ágreiningur hjá þeim sem til þessa máls þekkja. Hæstv. heilbrrh. hefur rakið það að þegar þetta mál kom hér fram í fyrra dundu yfir þingmenn mótmæli annars vegar frá ófaglærðu fólki, sóknarkonum og Alþýðusambandinu og hins vegar frá faglærðu fólki, hjúkrunarfræðingum og öðrum hjúkrunarstéttum. Það er vegna þess að þessi ágreiningur er óleystur sem einstakir þingmenn þessa flokks sem ég starfa í gerðu þennan fyrirvara og það er vegna þess sem ekki hefur tekist samstaða um þetta mál í nefndinni. ( Gripið fram í: Hvað margir?) En ég spyr: Hv. 2. þm. Vesturl. er sjálf hjúkrunarfræðingur. Hver er hennar afstaða í þessu máli? (Gripið fram í.) Ætlar hún að skýla sér á bak við þessa bókun sem segir ekki neitt? ( Gripið fram í: Ég er búin að segja það, þú hefur ekki verið hér við . . . ) Ætlar Framsfl. að skýla sér á bak . . .
( Forseti (GunnS) : Ég óska eftir því að hv. þm. sýni stillingu og hv. ræðumaður ljúki máli sínu af því að tíma er lokið.)
( IP: Ég boðaði brtt., hv. þm.) Ja, hún gengur væntanlega út á það að breyta hinni umdeildu grein. ( IP: Já, nákvæmlega . . . ) Það er nefnilega það. (Forseti hringir.) Ég á rétt á að kveðja mér hljóðs aftur, forseti. Ég hef bara talað einu sinni.