Áhafnir íslenskra kaupskipa

107. fundur
Laugardaginn 25. febrúar 1995, kl. 14:21:59 (5147)


[14:21]
     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Ég ætla að bera af mér þær sakir sem forseti ber mig hér. Það vill svo til að ég var sjálf forseti þessa þings í þrjú ár og ég sá aldrei ástæðu til að gera við það athugasemd þó að hv. þm. kvörtuðu yfir því að formenn nefnda sætu ekki umræður um þá málaflokka sem þeir áttu að fjalla um. Þetta kom fyrir hvað eftir annað. Þetta kom fyrir margsinnis í gær og ég lýsi furðu minni yfir þeim orðum hæstv. forseta að það sé eitthvað óvenjulegt að yfir slíku sé kvartað. Það er bara þvert á móti alvanalegt.