Greiðsla á bótum til þolenda afbrota

107. fundur
Laugardaginn 25. febrúar 1995, kl. 14:45:09 (5154)


[14:45]
     Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. allshn. á þskj. 868 um frv. til laga um greiðslu ríkissjóðs á

bótum til þolenda afbrota og enn fremur meðfylgjandi brtt. á þskj. 869.
    ,,Nefndin hefur fjallað um málið og fékk hún á sinn fund Högna S. Kristjánsson, lögfræðing í dómsmálaráðuneyti, Helga V. Jónsson héraðsdómara, Dögg Pálsdóttur, skrifstofustjóra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti og Jón H. Snorrason, deildarstjóra í Rannsóknarlögreglu ríkisins.
    Markmið frumvarps þessa er að styrkja stöðu brotaþola með þeim hætti að ríkissjóður greiði bætur fyrir líkamstjón og miska sem leiðir af broti á almennum hegningarlögum. Það sama gildi um tjón á munum sem tjónþoli bar á sér þegar líkamstjóni var valdið. Tjónþoli eigi þó ekki rétt á miskabótum þegar um er að ræða brot sem varðar einungis við ákvæði hegningarlaga um ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs.
    Í 6. gr. frumvarpsins kemur m.a. fram að það sé skilyrði greiðslu bóta að brot, sem tjón er rakið til, hafi án ástæðulauss dráttar verið kært til lögreglu. Nefndin álítur að almennt skuli við það miðað að brotið verði kært innan sex mánaða frá að það var framið.

    Lagðar eru til tvær breytingar á frumvarpinu, annars vegar að bótanefnd eigi ekki aðgang að sjúkraskrám nema með samþykki brotaþola. Hins vegar er lagt til að dómsmálaráðherra veiti Alþingi árlega upplýsingar um þau útgjöld sem lög þessi hefðu í för með sér, ef samþykkt verða, næstu fimm árin í ljósi þess að alls óvíst er hversu mikil þau verða.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með þessum breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.``
    Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru Ingi Björn Albertsson, Kristinn H. Gunnarsson og Ólafur Þ. Þórðarson en aðrir nefndarmenn undirrita nefndarálitið.
    Virðulegi forseti. Ég nota þetta tækifæri til þess að þakka hv. þm. í allshn. fyrir gott samstarf þar sem mikill fjöldi mála hefur verið til umfjöllunar. Enn fremur vil ég fyrir hönd nefndarinnar færa ritara allshn., Rögnu Árnadóttur, sérstakar þakkir fyrir samstarfið.