Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

107. fundur
Laugardaginn 25. febrúar 1995, kl. 16:13:14 (5181)

[16:13]
     Gísli S. Einarsson :
    Frú forseti. Í umræðum í nótt um breytingartillögur við frv. til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum komu fram fyrirspurnir til félmn. varðandi heimildir til reglugerðar og þar sem sá sem hér stendur hafði ekki svör á reiðum höndum þótti mér rétt nú þegar ég var búinn að kanna málið að gera grein fyrir því að í lögum um snjóflóð og skriðuföll, nr. 28/1985, kemur fram í 14. gr. að félmrh. setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara. Ég segi já.