Frestun á fundum Alþingis

109. fundur
Laugardaginn 25. febrúar 1995, kl. 21:03:33 (5241)

[21:03]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Hæstv. forseti. Ég ber fram till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan er svohljóðandi:
    ,,Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 25. febr. 1995.``
    Tillagan skýrir sig sjálf.