[11:33]
Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég tel að þau rök sem hv. þm. teflir hér fram þar sem hann lýsir andstöðu sinni við sérstakan héraðsdóm í skatta- og bókhaldsmálum séu hreinlega ekki gild. Einu rökin sem hann teflir fram eru að það sé stefnt að því að fækka þessum dómstólum. Við höfum fyrir okkur staðreyndir í þessu máli, hvernig dómskerfið hefur virkað í þessum málum, hve mikil seinvirkni hefur verið í dómskerfinu í þessum málum og hve mörg ár það hefur tekið að fá meðferð á skattsvikamálum. Ég tel því að það standi öll efni til þess í þessum sérstöku málum, sem eru skattsvikamál sem okkur ber að taka á af fullri hörku, að málin verði rekin fyrir sérstökum dómstóli.