Tilkynning um utandagskrárumræðu

5. fundur
Mánudaginn 10. október 1994, kl. 13:36:19 (131)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en gengið er til dagskrár vill forseti minna á að að lokinni atkvæðagreiðslu fer fram utandagskrárumræða að beiðni þingflokka stjórnarandstöðunnar. Málshefjandi verður hv. 1. þm. Austurl., Halldór Ásgrímsson.
    Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og er um stöðu ríkisstjórnarinnar.