[17:24]
Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Það er alveg greinilegt að þegar farið er að tæta þessa glansmynd í sundur þá loksins kemst fjmrh. að raun um það hvar hann er staddur og bregst við reiður og sár og fúll. Það þýðir ekkert að koma í ræðustólinn reiður, sár og fúll, hæstv. fjmrh. Við getum haldið áfram í allan dag og alla nótt að reiða þessar staðreyndir fram. Og segja hér að fjmrh. hafi látið sjávarútveginn fá tekjur á móti. Hvílíkt grín. Það gerðist á þessu kjörtímabili að ríkisstjórnin tók upp á að skattleggja sjávarútveginn. M.a. átti hann að standa undir rekstri ríkisstofnana. Það hafði aldrei tíðkast áður. Svo þegar það er lagt niður þá er sagt að það sé verið að skila tekjum á móti. Hvílíkar hundakúnstir í málflutningi.
Svo er hæstv. ráðherra að tala um húsnæðismálin. Ráðherra sem stendur frammi fyrir því að það hefur enginn viljað kaupa þau bréf sem Húsnæðisstofnun hefur boðið á markaði aftur og aftur og aftur á undanförnum mánuðum. Og Seðlabankinn, Steingrímur Hermannsson og Birgir Ísleifur, hafa hlaupið til til að bjarga ráðherranum frá þessum vanda í húsnæðismálum og hafa látið Seðlabankann kaupa húsnæðisbréf fyrir 4 milljarða það sem af er þessu ári. ( GÁ: Það eru margar hjólbörur.) Já, það eru margar hjólbörur, hv. þm., sem hafa verið keyrðar á milli þvert yfir götuna á milli Seðlabankans og fjmrn. Þannig að fjmrh. sem er að tala um viðskilnað í húsnæðismálum á sama tíma og það er Seðlabankinn sem með 4 milljörðum hefur bjargað hruni húsbréfakerfisins bara á fáeinum mánuðum ætti lítið að vera að tala um viðskilnað í húsnæðismálum.
Það er satt að segja alveg sama hvar litið er á hallann hjá ríkissjóði, skuldasöfnunina, lánakerfið í húsnæðismálunum, erlendu skuldirnar, tekjuskatt einstaklinganna, alveg sama hvar litið er á alla þessa mælikvarða sem Sjálfstfl. hefur viljað leggja á undanförnum árum. (Gripið fram í.) Já, hæstv. fjmrh. verður bara að þola það án frammíkalla að staðreyndirnar séu reiddar hér fram. En ég skil vel (Gripið fram í.) að hann hafi orðið reiður og sár vegna þess að það er alveg greinilegt að hann hefur verið farinn að trúa sinni eigin glansmynd.
( Forseti (VS) : Tíminn er búinn.)
Og þegar hún er tætt í sundur þá ókyrrist hann svo í salnum að hann getur ekki einu sinni hlustað á einfalt mál. ( Fjmrh.: Af hverju svararðu ekki spurningunni?)