Fjárlög 1995

6. fundur
Þriðjudaginn 11. október 1994, kl. 20:43:31 (246)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Hæstv. fjmrh. bauð upp á umræður um vaxtastefnu ríkisstjórnarinnar og forseta fannst það ágætis tillaga að slík umræða gæti farið fram mjög fljótlega.
    Þar sem ekki er mjög löng stund síðan nokkrir hæstv. ráðherrar fengu kall er ekki útséð um hvort þeir muni birtast hér fleiri. Forseti telur ástæðu til að halda umræðunni áfram um sinn og sjá hvað setur.