[20:51]
Jón Helgason (um fundarstjórn) :
Hæstv. forseti. Ósk hefur komið fram frá einum þingflokki um að fresta umræðunni og hún studd af fleiri hv. þm. Ég legg til að hæstv. forseti frestaði þessum fundi t.d. í 10 mínútur þannig að tækifæri gæfist til að ræða við hæstv. fjmrh. um þessa stöðu sem er komin upp og þá í samráði við hæstv. forseta.