[21:21]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Hv. þm. bað mig um að svara spurningu um vexti. Ég skal gera það. Ég tel vel að vextir geti lækkað á næsta ári og næstu mánuðum. Við höfum einungis verið að tala um þann hluta markaðarins sem heitir skammtímamarkaður. Þar hafa vextir verið að hækka í nágrannalöndunum og munu ugglaust hækka á næstu vikum, en þeir vextir geta líka lækkað. Ég heyrði það hér í dag að bankaráðsmaður Búnaðarbankans sagði að vextir gætu lækkað í bankakerfinu fyrir það fyrsta. Í öðru lagi má búast við því að eftir kjarasamninga og kosningar komist meiri ró á markaðinn, eins og gerist víða annars staðar. Það er talað um það að í Þýskalandi, eftir kosningarnar þar, megi búast við því að vextir geti lækkað þar og sömu sögu er að segja þar sem meiri ró og kyrrð færist yfir. Þetta er auðvitað ekki ljóst. Vextir hafa verið að hækka og lækka á víxl og það má búast við því að í Bretlandi og Bandaríkjunum, á meðan þenslan er að fara af stað, haldist vextir á skammtímamarkaði tiltölulega hærri en þeir voru áður. Aðalatriðið er þó það sem sagt er í fjárlagafrv. og það sem forsrh. sagði, að við mundum ná niður vöxtum og þegar það er sagt þá er auðvitað miðað við þá vexti sem eru til staðar bæði hérlendis og erlendis. Og ég get sannfært hv. þm. um það að nú eru vextir á skammtímamarkaði á Íslandi mjög lágir, þeir lægstu á Norðurlöndum og þótt víðar væri leitað. Það er aðeins á örfáum stöðum í heiminum sem vextir eru lægri á
skammtímamarkaði heldur en hér á landi nú.